Salka Sól Eyfeld
Salka Sól leikur titilhlutverkið í söngleiknum Ronju ræningjadóttur sem sýndur er á Stóra sviðinu leikárið 2018-19.
Salka Sól Eyfeld er tónlistarkona, leikkona og fjölmiðlakona sem hefur komið víða við, þrátt fyrir ungan aldur.
Hún er meðal annars í hljómsveitunum AmabAdamA og Reykjavíkurdætrum.
Salka hefur leikið í sjónvarpi, kvikmyndum og á sviði, meðal annars lék hún lék í sjónvarpsþáttunum Ófærð.
Salka Sól samdi ásamt hljómsveit tónlistina í Í hjarta Hróa hattar í Þjóðleikhúsinu, en hljómsveitin lék einnig og flutti tónlistina á sviðinu. Salka Sól samdi jafnframt söngtexta fyrir sýninguna.
Salka vann Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2015 í flokknum Söngkona ársins. Hún var útnefnd Bæjarlistamaður Kópavogs árið 2014.