Þú ert hér: Þjóðleikhúsið /

Skoppa og Skrítla í "söng-leik"

eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur

Leiksýning þeirra Skoppu og Skrítlu sló rækilega gegn á síðasta leikári  og var ein vinsælasta sýningin í Þjóðleikhúsinu það árið og var tilnefnd til Grímuverðlaunanna sem besta barnasýningin. Skoppa og Skrítla ferðuðust líka til Kaupmannahafnar, Afríku og Bandaríkjanna en var sýningin valin sem athyglistverðasta barnasýningin í New York af tímaritinu Time Out. Í þessari nýju sýningu fá Skoppa og Skrítla liðsauka en nokkrir dansarar á aldrinum 9-16 ára taka þátt og bregða sér í hin ýmsu gervi. Sýningin ferðast um mörg heimsins höf og verða margar kunnar persónur á veginum þar á meðal Frelsistyttan í New York, Englandsdrottning og sjálfur Shakespeare. Sem fyrr er sýningin hugsuð fyrir yngstu leikhúsgestina sem enn eru að æfa sig að koma í leikhús en hún hentar börnum frá
9 mánaða til 6 ára. 

Miðaverð á sýninguna er 1500 kr. en greiða þarf fyrir alla áhorfendur - unga sem aldna

Ath. miðar sem eru keyptir á netinu eru afhentir við innganginn í Kúluna.


Tónlist
Hallur Ingólfsson

Lýsing
Ásmundur Karlsson

Leikarar
Hrefna Hallgrímsdóttir
Linda Ásgeirsdóttir

Dansarar
Andri Fannar Pétursson
Davíð Bjarni Chiarolanzio
Helga Kristín Ingólfsdóttir
Jóhanna Dröfn Stefánsdóttir
Katrín Eyjólfsdóttir
Rakel Matthíasdóttir

Myndvinnsla
Bragi Þór Hinriksson

Þjóðleikhúsið