/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Eggert Þorleifsson

Leikari
/

Eggert Þorleifsson hefur frá árinu 1980 leikið í fjölmörgum leiksýningum, sjónvarpsmyndum og kvikmyndum. Hér lék hann m.a. í Þrettándu krossferðinni, Utan gátta, Brennuvörgunum, Oliver, Hænuungunum, Lé konungi, Afmælisveislunni, Englum alheimsins, Sjálfstæðu fólki, Segulsviði, Heimkomunni, Föðurnum, Súper og Englinum. Hjá LR lék hann m.a. í Gretti, Hamlet, Dómínó, Sumrinu ’37, Horft frá brúnni, Djöflunum og Belgíska Kongó. Meðal fjölmargra kvikmynda sem hann hefur leikið í eru Skammdegi, Stella í orlofi, Sódóma Reykjavík, Með allt á hreinu, Nýtt líf, Dalalíf og Löggulíf. Hann hlaut Grímuna fyrir Föðurinn og Belgíska Kongó og var tilnefndur fyrir Sjö ævintýri um skömm, Afmælisveisluna, Hænuungana, Utan gátta og Chicago.

Hann leikur í Sjö ævintýrum um skömm í Þjóðleikhúsinu í vetur.

 

Nánar um feril:

Eggert Þorleifsson hefur frá árinu 1980 leikið í fjölmörgum sýningum hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Þjóðleikhúsinu og leikhópum, auk þess sem hann hefur leikið í ýmsum sjónvarps- og kvikmyndum og skemmtiþáttum.

Hann leikur í Sjö ævintýrum um skömm í Þjóðleikhúsinu í vetur.

Hér í Þjóðleikhúsinu hefur Eggert leikið í Þrettándu krossferðinni, Engisprettum, Þrettándakvöldi, Sumarljósi, Utan gátta, Brennuvörgunum, söngleiknum Oliver, Hænuungunum, Heddu Gabler, Lé konungi, Vesalingunum, Afmælisveislunni, Tveggja þjóni, Fyrirheitna landinu, Englum alheimsins, Manni að mínu skapi, Spamalot, Eldrauninni, Hamskiptunum, Sjálfstæðu fólki, Segulsviði, Heimkomunni, Föðurnum, Einræðisherranum, Súper – þar sem kjöt snýst um fólk, Slá í gegn, Atómstöðinni – Endurliti og Englinum.

Fyrsta verkefni Eggerts hjá Leikfélagi Reykjavíkur var Grettir árið 1980, en meðal annarra hlutverka hans hjá LR má nefna Hóras í Hamlet, Heiðbjart í Ég er hættur! Farinn!, Leonid í Á ég hvergi heima?, Victor í  Kabarett, ýmis hlutverk í Við borgum ekki! Við borgum ekki!, Jónatan í Tvískinnungsóperunni, Belg í Trúðaskólanum, Kristján í Dómínó, Nikolaj Kirsanov í Feður og synir, Howard Hogan í Feitir menn í pilsum, Stefán í Sumrinu ’37, Eddie í Horft frá brúnni, Brjálæðinginn í Stjórnleysingi ferst af slysförum, Markús í Litlu hryllingsbúðinni, Lebjadkín kaftein í Döflunum og byssubófa í Kysstu mig Kata. Eggert lék einnig í Skáldanótt og Með vífið í lúkunum og hina eftirminnilegu Rósalind í Belgísku Kongó.

Meðal verkefna Eggerts með sjálfstæðum leikhópum eru Kirsuberjagarðurinn hjá Frú Emilíu, Bein útsending í Loftkastalanum og Við feðgarnir í Hafnarfjarðarleikhúsinu.

Meðal kvikmynda sem Eggert hefur leikið í eru Kurteist fólk, Stóra planið, Í takt við tímann, Stella í framboði, Villiljós, Fíaskó, Draumadísir, Stuttur frakki, Sódóma Reykjavík, Ingaló, Foxtrott, Skytturnar, Stella í Orlofi, Skammdegi, Með allt á hreinu, Nýtt líf, Dalalíf og Löggulíf.

Eggert hlaut Grímuverðlaunin fyrir leik sinn í Föðurnum og Belgíska Kongó og var tilnefndur til sömu verðlauna fyrir Afmælisveisluna, Hænuungana, Utan gátta og Chicago.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími