05. Júl. 2020

Hilmir Snær til liðs við Þjóðleikhúsið

Hilmir Snær Guðnason verður fastráðinn við Þjóðleikhúsið frá og með haustinu. Hann bætist þar með í hóp þeirra fjölmörgu leikara og listrænu stjórnenda sem þegar hafa gengið til liðs við Þjóðleikhúsið á undanförnum mánuðum.
  • Hilmir Snær í hlutverki sínu í Loddaranum ásamt Nínu Dögg Filippusdóttur og Guðjóni Davíð Karlssyni.

Fyrsta verkefni hans á föstum samningi við Þjóðleikhúsið verður hlutverk í leikritinu Framúrskarandi vinkona, sem byggir á Napólísögum Ferrantes sem notið hafa gríðarlegra vinsælda um allan heim. Hilmir mun einnig leika í tveinur nýju íslenskum verkun, annars vegar eftir Tyrfing Tyrfingsson sem sett verður upp á Stóra sviðinu, og hins vegar í verki eftir Jón Gnarr sem sýnt verður í nýju hádegisleikhúsi Þjóðleikhússins.

Síðar á leikárinu mun Hilmir fara með hlutverk í nýju verki Tyrfings Tyrfingssonar sem sett verður upp á Stóra sviðinu næsta vetur en verk hans hafa vakið verðskuldaða athygli síðustu ár, en þetta er fyrsta verkið sem hann skrifar gagngert fyrir Þjóðleikhúsið og einnig það fyrsta sem sýnt verður á stóru sviði. Þá mun Hilmir Snær einnig leika í nýju leikriti Jóns Gnarr sem frumsýnt verður í nýju hádegisleikhúsi Þjóðleikhússins. Hilmir hefur þó ekki alveg sagt skilið við Borgarleikhúsið að sinni því hann hljóp í skarðið fyrir Ólaf Darra Ólafsson í verkinu Oleanna sem frumsýnt verður í lok ágúst.

Hilmir gengur til liðs við þéttan hóp starfsmanna Þjóðleikhússins en fyrir skemmstu var tilkynnt um komu Kristínar Þóru Haraldsdóttur og Hilmars Guðjónsssonar en þau munu meðal annars leika saman í verkinu Upphaf eftir David Eldridge í leikstjórn Maríu Reyndal.
Í mars var tilkynnt um ráðningu Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir listræns ráðunautar og staðgengils leikhússtjóra, auk þess sem þau Ólafur Egill Egilsson var fastráðinn sem leikstjóri, Ilmur Stefánsdóttir leikmyndahöfundur og Björn Bergsteinn Guðmundsson sem yfirljósahönnuður.

05. Júl. 2020

Hilmir Snær til liðs við Þjóðleikhúsið

ооо

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími