Þjóðleikur

Um Þjóðleik, leiklistarhátíð fræðsludeildar Þjóðleikhússins í samstarfi við fjölmarga aðila á landsbyggðinni:

Þjóðleikur er leiklistarhátíð ungs fólks sem haldin er annað hvert ár á landsbyggðinni. Þekkt íslensk leikskáld eru fengin til að skrifa krefjandi og spennandi verk fyrir 13-20 ára leikara sem svo eru sett upp í hinum ýmsu byggðum landsins. Lokahátíðir eru haldnar að vori þar sem allar sýningar í hverjum landsfjórðungi koma saman á stórri leiklistarhátíð.

Markmið verkefnisins er skýrt: Að tengja Þjóðleikhúsið á lifandi hátt við ungt fólk á landsbyggðinni og efla þannig bæði áhuga þeirra og þekkingu á listforminu.

Ávinningur Þjóðleiks hingað til hefur verið fjölþættur. Hann hefur haft mælanleg áhrif á áhuga ungs fólks og afstöðu til leikhúss á þeim landsvæðum sem verkefnið hefur náð til. Eftir að Þjóðleikur hóf göngu sína hafa skólar í auknum mæli boðið upp á valáfanga í leiklist og orðið hefur til nýr og frjór vettvangur til samvinnu fyrir kennara og aðra sem áhuga hafa á að vinna að leiklist með ungu fólki.

Auk þess að virkja hundruðir til þátttöku í uppsetningu leikverka hefur aðsókn á sýningar og lokahátíð Þjóðleiks verið einstaklega góð. Þannig hefur hann einnig stuðlað að auknu læsi á listformið langt út fyrir þann hóp sem tekur beinan þátt í verkefninu.

Skapandi hugsun og hugmyndavinna var lögð til grundvallar á námskeiðum sem Þjóðleikhúsið bauð fullorðnum leiðbeinendum verkefnanna á. Áhersla var lögð á að fá þátttakendur til að ögra sjálfum sér sem listamenn og fara ekki endilega augljósu leiðina að hlutunum.  Til að nefna lítið dæmi var rætt um val á leikmunum: Þótt bifvélavirkinn í leikverkinu sé að drekka kaffi er ekkert sem segir að hann þurfi að drekka það úr groddalegum kaffifanti. Hvað með að láta hann drekka kaffið úr fíngerðum postulínsbolla, úr blómapotti eða jafnvel kampavínsglasi?  Með því að leita út fyrir ramma hins augljósa og hugsa um hvert smáatriði sem listræna ákvörðun má gefa hverju leikverki nýjar víddir og undirtexta sem gera nálgunina miklu áhugaverðari fyrir áhorfandann.

Á lokahátíðum Þjóðleiks blasir við hversu ólíkar leiðir er hægt að fara að einum og sama textanum. Það er engu líkt að fylgjast með ungu leikhópunum horfa á aðrar uppsetningar en þeirra eigin á sama verki og heyra þau svo tala saman af ástríðu og þekkingu um hinar mismunandi túlkunarleiðir, persónusköpun og stíl. Reynslan hefur gefið þeim aðgang að orðræðunni og þau hafa fengið lykla í hendurnar sem veita þeim aðgang að því að verða virkir þátttakendur í menningarlegri samræðu í miklu víðara samhengi.

Vigdís Jakobsdóttir, hugmyndafræðingur og framkvæmdastýra Þjóðleiks.




Letur breytingar


Leit