Vígsla Þjóðleikhússins, Þjóðleikhúsið, Reykjavík, 1950.
Lítið rit um vígslu Þjóðleikhússins tekið saman af Lárusi Sigurbjörnssyni og Yngva Thorkelssyni í samráði við Guðlaug Rósinkranz.
Jónas Jónson frá Hriflu: Þjóðleikhúsið - þættir úr byggingarsögu, Ísafoldarprentsmiðja h.f., Reykjavík, 1953.
Byggingarsaga Þjóðleikhússins rakin ítarlega af Jónasi Jónssyni frá Hriflu.
Þjóðleikhúsið 5 ára, Þjóðleikhúsið, Reykjavík, 1955.
Skýrsla um störf Þjóðleikhússins fyrstu fimm árin. Vigdís Finnbogadóttir tók saman í samráði við Guðlaug Rósinkranz þjóðleikhússtjóra.
Þjóðleikhúsið 10 ára, Þjóðleikhúsið, Reykjavík, 1960.
Skýrsla um störf Þjóðleikhússins á árunum 1955-1960. Vigdís Finnbogadóttir tók saman í samráði við Guðlaug Rósinkranz þjóðleikhússtjóra.
Þjóðleikhúsið 20 ára, Þjóðleikhúsið, Reykjavík, 1970.
Skýrsla um störf Þjóðleikhússins á árunum 1960-1970. Oddur Björnsson tók saman í samráði við Guðlaug Rósinkranz þjóðleikhússtjóra.
Þjóðleikhúsið 35 ára, Þjóðleikhúsið, Reykjavík, 1986.
35 ára afmælisrit Þjóðleikhússins. Árni Ibsen tók saman.
Guðlaugur Rósinkranz: Allt var það indælt stríð, Örn og Örlygur 1977.
Æviminningar Guðlaugs Rósinkranz, fyrsta þjóðleikhússtjórans. Hann gegndi embættinu frá 1950 til 1972, eða í 22 ár.
Baldur Hermannsson: Ævars saga Kvaran, Örn og Örlygur, Reykjavík 1989.
Ævisaga Ævars Kvaran sem var á samningi sem leikari við Þjóðleikhúsið frá stofnun þess til ársloka 1980. Hann lék á annað hundrað hlutverka við leikhúsið á þessum tíma. Ævar rak auk þess leiklistarskóla í áraraðir, þar sem margir merkir leikarar fengu sína fyrstu tilsögn í greininni.
Eðvarð Ingólfsson: Róbert - Ævisaga listamanns, Æskan, Reykjavík, 1993.
Ævisaga Róberts Arnfinnssonar, sem lék í Þjóðleikhúsinu frá stofnun þess.
Njörður P. Njarðvík: Sá svarti senuþjófur, Bókaútgáfan Skálholt, 1963.
Ævisaga Haraldar Björnssonar leikara. Haraldur var fyrsti íslenski leikarinn sem sótti formlegan leiklistarskóla. Bókin er skemmtileg aflestrar, og ber vitni um þennan sérstaka persónuleika.
Gunnar M. Magnúss. (ritstj.): Haraldur Björnsson 1915-1945, Hrappseyjarprent, Reykjavík 1945. Rit gefið út á 30 ára leikafmæli Haraldar Björnssonar.
Jóhannes Helgi: Valur og leikhúsið, Arnartak, Reykjavík, 1982
Ævisaga Vals Gíslasonar leikara í viðtalsformi. Í bókinni er einnig rætt við listamenn sem voru samtíða Vali í leikhúsinu: Gunnar Eyjólfsson, Klemenz Jónsson, Svein Einarsson, Helga Skúlason og Helgu Bachmann.
Ath. þessi listi er ekki tæmandi. Allar ábendingar um frekari heimildir vel þegnar á netfangið leikhusid@leikhusid.is.