Hópur getur náð mikilli samstillingu í gegnum góða einbeitingarleiki. Notið þá reglulega, sem hluta af upphitun, og til þess að ná hópnum saman inn á milli krefjandi verkefna. Snjallt getur t.d. verið að nota einbeitingaræfingar eftir pásur eða frímínútur.
,,Ha!"
Frábær fókus-æfing og glettilega fyndinn leikur fyrir alla aldurshópa. Passið upp á að ekki sé talað meðan leikið er!
-
Hópurinn dreifir sér um rýmið, með handleggi út til hliðanna, olnboga beygða og hendur vísa fram.
-
Hvaða þátttakandi sem er, má hvenær sem er kalla hátt ,,HA!" um leið og hann/hún klappar saman höndunum og stekkur upp. Hópurinn svarar strax með því að hoppa upp og snúa að þeim sem kallaði ,,HA".
-
Einhver annar kallar ,,HA!" næst, og hópurinn svarar með því að hoppa upp og snúa að honum.
-
Leikurinn getur gengið annað hvort hægt eða hratt. Prófið að gefa fyrirmæli um tempó.
___
Höndin og spottinn
Þetta er skemmtileg og líkamlega þrælerfið æfing sem kemur upprunalega frá brasilíska leikhúsmanninum Augusto Boal. Hér er teygt og togað á ólíklegustu líkamsvöðvum, ef vel tekst til. Þetta er líka góð æfing fyrir einbeitingu.
-
Hópnum er skipt í pör (ef fjöldinn er oddatala, geta þrír verið saman í einum hóp, og þá réttir A fram báðar hendur).
-
A setur lófann fram með útrétta hönd.
-
B setur andlit sitt um það bil 10 cm. frá lófa A, og á að reyna að halda því bili óbreyttu, hvað sem gerist. Hann/hún á að ímynda sér að spotti hafi verið bundinn milli nefsins á honum/henni og lófa A, sem má hvorki slitna né slakna á.
-
A má svo fara að hreyfa höndina rólega (mikilvægt að byrja mjög rólega!), og B hreyfir sig með. Ef lófinn hallar, þarf B að halla undir flatt, ef lófinn fer upp, þarf B jafnvel að fara upp á tær o.s.frv.
-
Þegar þetta er farið að ganga vel, má A fara að ganga um, en hægt og rólega, og B fylgir. Ath. að þetta er samvinnuverkefni. Takmarkið er ekki að klekkja á félaga sínum! Ef ,,spottinn slitnar" þarf að byrja upp á nýtt í upphafsstöðu og fara hægt af stað aftur.
-
Þegar þetta er farið að ganga vel, er um að gera að reyna að gera æfinguna erfiðari (upp við veggi, niður við gólf, yfir, undir, uppá o.s.frv.)
-
Skipt um hlutverk. Byrjað á byrjuninni.
___
Klapphringur
Þessi klassíski leikur reynir á einbeitingu og snarpa hugsun og hentar öllum aldri. Hann er einfaldur að læra, og mjög skemmtilegur. Hér þurfa allir að vera vakandi og viðbúnir frá upphafi til enda. Ath. ef hópurinn telur fleiri en 20, er sennilega betra að skipta honum upp í tvo hópa, sem hvor um sig býr til hring.
-
Hópurinn tekur sér stöðu, standandi í hring.
-
Klapp er látið ganga hringinn, eins og bolta sé hent á milli. Ath. mikilvægt er að ná augnsambandi við þann sem maður er að klappa í áttina að.
-
Fyrst æfir hópurinn sig á að láta klappið ganga hratt hringinn. Svo má fara að senda klappið ýmist þvert yfir hringinn, í öfuga átt, eða bara hvert sem er. En athugið að ná augnsambandi, og aldrei gefa pásu. Klappið á að ganga þannig að eitt taki við af öðru og aldrei myndist bil á milli.
___
Stafrófið
Hljómar auðvelt, en er það alls ekki!
Hópurinn liggur á bakinu á gólfinu, í hring þannig að höfuðin liggja saman. Svo loka allir augunum og hafa algera þögn. (Þetta getur tekið smá stund!)
Þegar það hefur náðst, segir einhver (hver sem er): A.
Einhver annar segir þá B og sá þriðji C. Röðin er ekki ákveðin fyrirfram. Ef hins vegar tveir segja óvart samtímis næsta staf, þarf að byrja aftur á A.
Takmarkið með þessari æfingu er að komast til enda í stafrófinu, án þess að nokkurn tíma tveir tali samtímis. Þetta er æfing sem kemur á óvart, því hún er bæði erfið og skemmtileg. Ath. það skiptir í raun ekki máli hvort maður kemst til enda eða ekki (það er nánast ómögulegt). Hópurinn getur verið búinn að ná fínni samstillingu án þess að komast nokkurn tíma lengra en að H!
___
Hraður númeraleikur
Ath. þessi leikur hentar síður fyrir yngri hópa, en þeim mun betur fyrir unglinga og fullorðna. Ekki gefast upp þó gangi illa til að byrja með. Reglurnar eru í raun sáraeinfaldar, þó þær virðist flóknar í fyrstu. Hér sem fyrr þarf að ítreka að hópurinn takist í sameiningu á við verkefnið og að allir haldi einbeitingu. Reynið að rjúfa ekki taktinn.
-
Þátttakendur standa í hálfhring, og fá númer í röð. Sá eða sú sem stendur lengst til hægri er númer eitt, næsti er númer tvö, o.s.frv.
-
Númer eitt byrjar leikinn, með því að kalla upp númer einhvers annars í hópnum. Sá eða sú sem kallað er á, á að svara með því að kalla enn annað númer. Og svo koll af kolli. Mjög einfalt.
-
En hér flækist málið aðeins: Þegar þátttakandi ruglast, eða hikar við að svara, þarf hann að færa sig (hratt og örugglega, án orða) neðst í röðina. Allir sem voru fyrir neðan þann sem ruglaðist í röðinni færa sig þar með upp um eitt sæti, og taka númer þess sem var fyrir ofan. Þetta þýðir að þeir sem neðst eru í röðinni eru mikið á hreyfingu, og skipta ört um númer.
-
Ef nr. 1 ruglast, færist hann/hún neðst í röðina, númer 2 verður þá 1 og allir í röðinni færast upp um einn. Gaman, gaman!