Önnur starfsemi

Þótt meginverkefni Þjóðleikhússins sé að setja upp leiksýningar, sinnir leikhúsið einnig ýmsum öðrum verkefnum. Þjóðleikhúsið vinnur að því að glæða áhuga landsmanna á leiklist og sviðslistum, meðal annars með námskeiðahaldi og ýmsum verkefnum, og leitast jafnframt við að efla íslenska leikritun.

Námskeið
fyrir almenning í tengslum við sýningar leikhússins eru haldin í samstarfi við Endurmenntun HÍ.
 
Höfundastarf Þjóðleikhússins felst í margvíslegu samstarfi við leikskáld, meðal annars í tengslum við undirbúning sýninga, leiksmiðjuvinnu, dramatúrgískri ráðgjöf og námskeiðahaldi.
 
Prologos er leikritunarsjóður Þjóðleikhússins sem stofnaður var sumarið 2008 og starfaði í þrjú ár.
 
Þjóðleikur er leiklistarhátíð ungs fólks sem haldin er annað hvert ár á landsbyggðinni. Þekkt íslensk leikskáld eru fengin til að skrifa krefjandi og spennandi verk fyrir 13-20 ára leikara sem svo eru sett upp í hinum ýmsu byggðum landsins. Lokahátíðir eru haldnar að vori þar sem allar sýningar í hverjum landsfjórðungi koma saman á stórri leiklistarhátíð. Markmið verkefnisins er að tengja Þjóðleikhúsið á lifandi hátt við ungt fólk á landsbyggðinni og efla þannig bæði áhuga þess og þekkingu á listforminu.

 
Á síðunni hér til vinstri er að finna ýmiskonar fróðleik og leiklistaræfingar.



Letur breytingar


Leit