Anna Kristín stundaði nám við Leiklistarskóla LR og lauk þaðan prófi 1968.
Hún starfaði í upphafi leikferils síns með Leikfélagi Reykjavíkur, og lék þar meðal annars Ástu í Skugga-Sveini, Kathy í Hitabylgju og Láru í Kertalogi.
Hún var fastráðin við Þjóðleikhúsið árið 1973 og hefur síðan leikið hér á sjöunda tug hlutverka, þar af mörg burðarhlutverk, til að mynda Regan í Lé konungi, Lóu í Silfurtúnglinu, Dúnu í Í smásjá, Kassöndru í Óresteiu, Kate í Dansað á haustvöku, Lottu í Stórum og smáum og Jelenu í Kæru Jelenu.
Meðal hlutverka hennar við Þjóðleikhúsið á síðustu árum má nefna frú Kapúlett í Rómeó og Júlíu, Írenu í Mávinum, frú Bastían í Kardemommubænum, Vilhelmínu í Þreki og tárum, Sunnevu í Tröllakirkju, frú Sörby í Villiöndinni, Önónu í Fedru, Helgu í Gullna hliðinu, Evrídíku í Antígónu, Jacqueline Picasso í Ástkonum Picassos, Ingibjörgu í Vatni lífsins, frú Ágústu Hansen og fleiri hlutverk í Jóni Oddi og Jóni Bjarna, Ellu Rentheim í Jóni Gabríel Borkmann, konuna á bænum í Dýrunum í Hálsaskógi, Helgu Sigurðardóttur í Öxinni og jörðinni, Höllu í Frelsi og aðalhlutverkið í Heiðri.
Hún hefur leikið fjölmörg hlutverk í útvarpi og sjónvarpi, meðal annars titilhlutverkið í Romm handa Rósalind.
Anna Kristín lék Maríu Callas í Master Class hjá Íslensku óperunni.
Anna Kristín var tilnefnd til menningarverðlauna DV í leiklist fyrir leik sinn í Stórum og smáum og Kæru Jelenu. Hún hlaut Stefaníustjakann fyrir störf sín að leiklist árið 1977.
Anna Kristín leikur í Íslandsklukkunni, Ballinu á Bessastöðum og Bjart með köflum hér í Þjóðleikhúsinu í vetur.
Síðast breytt í mars 2011.