Jóhannes Haukur Jóhannesson

 

Jóhannes útskrifaðist með BFA gráðu í leiklist vorið 2005 frá Leiklistardeild Listaháskóla Íslands. Hann hefur leikið fjölda hlutverka hjá Þjóðleikhúsinu, LR, LA og sjálfstæðum leikhópum.

Hér í Þjóðleikhúsinu hefur hann meðal annars leikið í Ballinu á Bessastöðum, Íslandsklukkunni, Finnska hestinum, Leitinni að jólunum, Gerplu, Skilaboðaskjóðunni, Bakkynjum, Patrek 1,5, Legi og Dínamíti.

Nú í vetur leikur Jóhannes Haukur í Leikárið 2009/10 lék Jóhannes Haukur einleikinn Hellisbúann í Íslensku óperunni. Leikárið 2008/09 lék hann hjá LR hlutverk kapteinsins Georg von Trapp í Söngvaseið, húsvörðinn Robba í Fólkinu í blokkinni og Erlend Karl í Fló á skinni. Hjá Leikfélagi Akureyrar lék hann Trausta Möller í Fullkomnu brúðkaupi, Arkasha í Maríubjöllunni og Tannlækninn í Litlu hryllingsbúðinni sem einnig var sýnd í Íslensku óperunni. Hann lék Ernst Ludwig í söngleiknum Kabarett hjá leikhópnum Á Senunni og Geira í Eilífri hamingju í Borgarleikhúsinu með Hinu lifandi leikhúsi. Samhliða leikaranámi sínu við LHÍ lék Jóhannes með atvinnuleikhúsum á sumrin, meðal annars í Grease, Hárinu og með Hinu lifandi leikhúsi í Pentagon sem sýnt var í Iðnó.

Jóhannes Haukur hlaut tilnefningu til Grímunnar sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir Eilífa hamingju.

Nú í vetur leikur Jóhannes Haukur í Heimsljósi, Vesalingunum, Leitinni að jólunum og Ballinu á Bessastöðum.

 

Síðast uppfært í ágúst 2011.





Letur breytingar


Leit