Atli Rafn Sigurðarson útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands 1997. Hann hefur farið með fjölda hlutverka við Þjóðleikhúsið, en hefur einnig leikið með ýmsum leikhópum, í sjónvarpi og kvikmyndum.
Meðal nýlegustu verkefna Atla Rafns í Þjóðleikhúsinu eru Lér konungur, Allir synir mínir, Gerpla, Óhapp og Leg. Meðal annarra hlutverka hans hér eru Fyedka í Fiðlaranum á þakinu, Marsellus í Hamlet, Valtýr í Kaffi, Jónatan í Bróður mínum Ljónshjarta, Angel í söngleiknum RENT, fiðlungurinn og Mikael höfuðengill í Gullna hliðinu, Lísander í Draumi á Jónsmessunótt, Brimir í Bláa hnettinum, Samúel í Laufunum í Toscana, Valvert og fleiri hlutverk í Cyrano frá Bergerac, Baddi í Halta Billa, Magnús í söngleiknum Með fullri reisn, Kjartan í Pabbastrák, Lilli klifurmús í Dýrunum í Hálsaskógi, Jón Guðni í Þetta er allt að koma, F1 og Litli Louis í Edith Piaf, Marteinn Einarsson í Öxinni og jörðinni, Kjartan í Grjóthörðum, Halldór Laxness í Halldóri í Hollywood og Brown lögregluforingi í Túskildingsóperunni.
Atli Rafn lék nýlega í Eilífri óhamingju hjá Hinu lifandi leikhúsi og Kommúnunni hjá Vesturporti. Hann lék í Músum og mönnum í Loftkastalanum og Shopping & Fucking á vegum EGG-leikhússins í Nýlistasafninu.
Atli Rafn hefur leikið í kvikmyndunum 101 Reykjavík, Myrkrahöfðingjanum, Ikingut, Mýrinni og Veðramótum.
Hann leikstýrði Brák á Söguloftinu í Landnámssetrinu og Frida ... viva la vida í Þjóðleikhúsinu.
Atli Rafn hlaut Edduverðlaunin fyrir leik sinn í Mýrinni. Hann hlaut Grímuna - Íslensku leiklistarverðlaunin fyrir leik sinn í Lé konungi og var tilnefndur fyrir leik sinn í Grjóthörðum, Legi, Halldóri í Hollywood og Eilífri óhamingju.
Verkefni Atla Rafns í Þjóðleikhúsinu í vetur eru Svartur hundur prestsins og Dagleiðin langa.
Síðast uppfært í ágúst 2011.