Eggert Þorleifsson hefur frá árinu 1980 leikið í fjölmörgum sýningum hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Þjóðleikhúsinu og leikhópum, auk þess sem hann hefur leikið í ýmsum sjónvarps- og kvikmyndum og skemmtiþáttum.
Fyrsta verkefni Eggerts hjá Leikfélagi Reykjavíkur var Grettir árið 1980, en meðal annarra hlutverka hans hjá LR má nefna Hóras í Hamlet, Heiðbjart í Ég er hættur! Farinn!, Leonid í Á ég hvergi heima?, Victor í Kabarett, ýmis hlutverk í Við borgum ekki! Við borgum ekki!, Jónatan í Tvískinnungsóperunni, Belg í Trúðaskólanum, Kristján í Dómínó, Nikolaj Kirsanov í Feður og synir, Howard Hogan í Feitir menn í pilsum, Stefán í Sumrinu '37, Eddie í Horft frá brúnni, Brjálæðinginn í Stjórnleysingi ferst af slysförum, Markús í Litlu hryllingsbúðinni, Lebjadkín kaftein í Döflunum og byssubófa í Kysstu mig Kata. Eggert lék einnig í Skáldanótt og Með vífið í lúkunum og hina eftirminnilegu Rósalind í Belgísku Kongó.
Meðal verkefna Eggerts með sjálfstæðum leikhópum eru Kirsuberjagarðurinn hjá Frú Emilíu, Bein útsending í Loftkastalanum og Við feðgarnir í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Hér í Þjóðleikhúsinu hefur Eggert leikið í Þrettándu krossferðinni, Engisprettum, Þrettándakvöldi, Sumarljósi, Utan gátta, Brennuvörgunum, söngleiknum Oliver, Hænuungunum, Heddu Gabler og Lé konungi.
Eggert hlaut Grímuverðlaunin fyrir leik sinn í Belgíska Kongó og var tilnefndur til sömu verðlauna fyrir Hænuungana, Utan gátta og Chicago.
Meðal kvikmynda sem Eggert hefur leikið í eru Kurteist fólk, Stóra planið, Í takt við tímann, Stella í framboði, Villiljós, Fíaskó, Draumadísir, Stuttur frakki, Sódóma Reykjavík, Ingaló, Foxtrott, Skytturnar, Stella í Orlofi, Skammdegi, Með allt á hreinu, Nýtt líf, Dalalíf og Löggulíf.
Í vetur leikur Eggert í Vesalingunum og Afmælisveislunni hér í Þjóðleikhúsinu.
Síðast uppfært í ágúst 2011.