Ilmur Kristjánsdóttir

 

Ilmur Kristjánsdóttir útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2003.

Fyrsta hlutverk hennar að lokinni útskrift var titilhlutverkið í Línu langsokk í Borgarleikhúsinu. Meðal annarra verkefna hennar þar má nefna Fólkið í kjallaranum, Ófögru veröld, titilhlutverkið í Sölku Völku, Ausu Steinberg, Chicago, Púntila og Matta, Sekt er kennd, Belgíska Kongó, Terrorisma og Ræðismannsskrifstofuna.

Ilmur lék hér í Íslandsklukkunni, Gerplu og Ívanov.

Hún lék í kvikmyndinni Brúðgumanum.

Hún hefur starfað talsvert fyrir sjónvarp bæði sem leikkona og handritshöfundur. Má þar nefna sjónvarpsþættina Stelpurnar og Ástríður, en báðir þættirnir hafa hlotið fjölda tilnefninga til Eddunar, íslensku kvikmyndaverðlaunanna.

Ilmur hlaut Grímuna – Íslensku leiklistarverðlaunin fyrir leik sinn í Ívanov og var tilnefnd fyrir Ausu Steinberg, Sölku Völku, Ófögru veröld og Íslandsklukkuna. Hún hlaut Edduverðlaunin fyrir leik sinn í Stelpunum og var tilnefnd til sömu verðlauna fyrir Ástríði, Brúðgumann og Dís.

 

Ilmur fer með titilhlutverkið í Heddu Gabler hér í Þjóðleikhúsinu í vetur.

 

 

Síðast breytt í febrúar 2011.





Letur breytingar


Leit