Þórunn Lárusdóttir útskrifaðist frá The Webber Douglas Academy of Dramatic Art í Lundúnum vorið 1998. Þórunn hefur verið fastráðin við Þjóðleikhúsið um árabil og leikið hér fjölda hlutverka. Nýlegustu hlutverk Þórunnar hér eru söngkonan í Íslandsklukkunni, Frú Corney í Oliver, Dada í Engisprettum, Annette í Vígaguðinum og vonda stjúpan í Skilaboðaskjóðunni. Meðal annarra hlutverka hennar hér eru Lína Lamont í Syngjandi í rigningunni, Michelle í Veislunni, Herma og fleiri hlutverk í Þetta er allt að koma, Marlene Dietrich og Heilög Theresa í Edith Piaf og Aðalheiður í Eldhúsi eftir máli.
Þórunn hefur einnig leikið hjá LR, ýmsum sjálfstæðum leikhópum og í sjónvarpi. Hún lék einleikinn Cellophane eftir Björk Jakobsdóttur í Iðnó í sumar og fór svo með verkið á leiklistarhátíðina í Edinborg í ágúst. Hún lék Sally Bowles í Kabarett í Íslensku óperunni, og hlaut þá tilnefningu til Grímunnar. Hún lék einnig meðal annars Auði í Litlu hryllingsbúðinni hjá LR og einleikinn Ferðir Guðríðar í Skemmtihúsinu. Þórunn starfar einnig sem söngkona og hefur sungið inn á fjölda geisladiska og komið fram á fjölda tónleika í gegnum tíðina.
Í vetur leikur Þórunn í Íslandsklukkunni, Finnska hestinum, Ballinu á Bessastöðum og Bjart með köflum.
Síðast uppfært í október 2010.