Þórhildur Þorleifsdóttir

Þórhildur Þorleifsdóttir hefur sett upp fjöldann allan af leiksýningum og leikstýrt sjónvarps- og kvikmyndum.

 

Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1976. Hún stundaði listdansnám við Listdansskóla Þjóðleikhússins frá tíu ára aldri í sex ár. Frekara dansnám stundaði hún við The Royal Ballet School í London en listdanskennaranám stundaði hún við The Royal Academy of Dancing í sömu borg. Hún hefur auk þess farið í fjölda námsferða, bæði lengri og skemmri.

Þórhildur hefur starfað í leikhúsi frá barnæsku sem dansari, leikari, danshöfundur og leikstjóri. Hún hefur leikstýrt óperum, leikritum og söngleikjum í öllum atvinnuleikhúsum landsins, í sjónvarpi, útvarpi og kvikmyndum. Hún hefur ennfremur kennt leiklist, listdans og líkamsþjálfun leikara.

 

Leikstjórnarverkefni Þórhildar í Þjóðleikhúsinu eru Engisprettur, Virkjunin, Glerbrot, Niflungahringurinn á Listahátið 1994, 13. krossferðin, M. Butterfly, Pétur Gautur, Ævintýri Hoffmanns, Yerma, Villihunang, Sveyk í síðari heimsstyrjöldinni, Gustur og Smalastúlkan og útlagarnir.

 

Þórhildur var einn stofnenda Leiksmiðjunnar árið 1968 og Alþýðuleikhússins árið 1975. Hún sviðsetti mörg fyrstu verka Böðvars Guðmundssonar með Alþýðuleikhúsinu, meðal annars Skollaleik, Heimilisdrauga og Krummagull.

 

Hún var helsti leikstjóri Íslensku óperunnar um árabil og hefur sviðsett fleiri söngleiki og óperur en nokkur annar íslenskur leikstjóri. Hún leikstýrði meðal annars Töfraflautunni, Il Trovatore og Otello í Íslensku óperunni.

 

Þórhildur leikstýrði meðal annars Ótemjunni, Völundarhúsi, Kysstu mig Kata, Sölumaður deyr, Lífsins tré, söngleiknum Chicago og Híbýlum vindanna í Borgarleikhúsinu. Meðal annarra leikstjórnarverkefna hennar eru Láttu ekki deigan síga Guðmundur hjá Stúdentaleikhúsinu, My Fair Lady hjá Leikfélagi Akureyrar og Hjónabandssæla í Gamla bíói.

 

Þórhildur leikstýrði kvikmyndinni Stellu í orlofi.

 

Þórhildur var leikhússtjóri Borgarleikhússins frá 1996 til 2000. Hún sat á Alþingi fyrir Samtök um kvennalista frá 1987 til 1991 og hefur auk þess verið varaborgarfulltrúi og varaþingkona fyrir sömu samtök. Hún var formaður Félags leikstjóra á Íslandi um árabil.

 

Þórhildur var tilnefnd til Grímunnar - Íslensku leiklistarverðlaunanna fyrir leikstjórn sína á Engisprettum. Sýning hennar á Chicago hlaut áhorfendaverðlaun Grímunnar.

 

Þórhildur leikstýrir Dagleiðinni löngu eftir Eugene O'Neill hér í Þjóðleikhúsinu í vetur.

 

 

(Febrúar, 2012).

 

 





Letur breytingar


Leit