
Vigdís Jakobsdóttir nam leiklistarfræði og leikstjórn við The University of Kent at Canterbury á árunum 1990-94. Hún hefur að námi loknu starfað að leiklist á ýmsum vettvangi, fyrst og fremst við leikstjórn. Hún setti upp leikritið Annað fólk eftir Hallgrím H. Helgason í Kaffileikhúsinu 1998 og leikstýrði útvarpsgerð af samnefndu verki í Útvarpsleikhúsinu. 2001. Hún leikstýrði Vilja Emmu í Þjóðleikhúsinu haustið 2001. Haustið 2002 leikstýrði Vigdís, og var meðhöfundur að einleiknum Muggur, sem sýndur var í Borgarleikhúsinu, á Bíldudal og á Ísafirði. Hún hefur sett upp á annan tug sýninga með áhugaleikhópum og framhaldsskólum, þar á meðal Íslandsklukkuna hjá Leikfélagi Selfoss og Kirsuberjagarðinn hjá Menntaskólanum við Sund, auk þess að kenna leiklist á ýmsum vettvangi. Hún hefur nokkrum sinnum verið aðstoðarmaður leikstjóra í sýningum í Þjóðleikhúsinu. Síðast aðstoðaði hún Kjartan Ragnarsson við uppfærsluna á Sjálfstæðu fólki. Vigdís er annar forsprakki leikhópsins VigMa, sem hefur staðið fyrir leikhúsgjörningum, meðal annars í Nýlistasafninu og í Listasafni Reykjavíkur, auk þess að gera útvarpsþætti fyrir rás 1. Hún gengdi starfi deildarstjóra fræðsludeildar Þjóðleikhússins frá því í mars 2002-2004. Vigdís er stundakennari við Listaháskóla Íslands.