SELMA BJÖRNSDÓTTIR starfar sem söng- og leikkona, dansari, leikstjóri og danshönnuður.
Hún leikstýrði söngleiknum Oliver! og Kardemommubænum í Þjóðleikhúsinu, Gosa í Borgarleikhúsinu og Grease í Loftkastalanum.
Meðal leiksýninga sem hún hefur leikið, sungið og dansað í eru West Side Story, Meiri gauragangur, Syngjandi í rigningunni, Halldór í Hollywood, Túskildingsóperan og Ástin er diskó lífið er pönk í Þjóðleikhúsinu, Rómeó og Júlía, Hamskiptin og Húsmóðirin hjá Vesturporti, Hið ljúfa líf, Augun þín blá, Grease, Litla hryllingsbúðin og Footloose í Borgarleikhúsinu, Rocky Horror, Áfram Latibær og Skari Skrípó hjá Flugfélaginu Lofti, Ávaxtakarfan og Benedikt búálfur hjá Draumasmiðjunni, Hárið hjá Menningarfélagi alþýðunnar og Ávaxtakarfan og Hafið bláa hjá Austurbæ.
Selma hefur einnig unnið við fjölda sýninga sem danshöfundur og aðstoðarleikstjóri og unnið talsvert við sjónvarp og talsetningu. Hún hefur jafnframt starfað við kennslu í söng, danslist og leiklist.
Hún var meðleikstjóri og kóreógraf í The Heart of Robin Hood hjá Royal Shakespeare Company.
Selma sendi frá sér sólóplöturnar I am og Life Won't Wait, dúettaplöturnar Sögur af sviðinu og Sögur af konum og kántrídiskinn Alla leið til Texas. Hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem flytjandi ársins árið 2000. Hún hefur tvívegis tekið þátt í Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva fyrir Íslands hönd og hafnaði í öðru sæti í keppninni í Jerúsalem árið 1999.
Selma stundaði nám í leikstjórn frá Bristol Old Vic Theatre School vorið 2010.
Sýningar Selmu á Kardemommubænum og Gosa voru tilnefndar til Grímuverðlaunanna sem barnasýning ársins.
Selma leikstýrir söngleiknum Vesalingunum í Þjóðleikhúsinu í vetur.
Síðast breytt í ágúst 2011.