Ólafur Egill Egilsson útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2002. Hann hefur starfað við fjölda leiksýninga sem leikari, leikstjóri og handritshöfundur, auk þess sem hann hefur skrifað kvikmyndahandrit.
Ólafur hefur starfað sem leikari hjá Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur og Leikfélagi Akureyrar, og unnið með sjálfstæðu leikhópunum Vesturporti og Frú Emilíu. Meðal leikverkefna hans í Þjóðleikhúsinu eru Leitin að jólunum, Lér konungur, Bjart með köflum, Gerpla, Íslandsklukkan, Frida...viva la vida, Ívanov, Túskildingsóperan, Pétur Gautur, Leitin að jólunum, Svört mjólk og Rambó 7. Meðal verkefna hans með Vesturporti eru Hamskiptin í Þjóðleikhúsinu,Woyzeck og Rómeó og Júlía í Borgarleikhúsinu og víðar, Brim og Kringlunni rústað. Hann lék í Óliver hjá Leikfélagi Akureyrar og Terrorisma hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Ólafur hefur leikstýrt eigin leikgerðum af Lilliom og Hundshjarta hjá Herranótt og Tartuffe í Stúdentaleikhúsinu, og leikstýrði verkinu Krádplíser með Reykvíska listaleikhúsinu. Hann gerði búninga kvikmyndarinnar Myrkrahöfðingjans og leikmyndir við sumarsmellina Grease og Fame.
Ólafur er meðhöfundur kvikmyndanna Sumarlandsins og Brims, og skrifaði kvikmyndahandritið að Brúðgumanum og vann leikgerð úr bók Halldórs Laxness Gerplu í samvinnu við Baltasar Kormák. Ólafur gerði leikgerð sýningarinnar Fólkið í kjallaranum hjá Leikfélagi Reykjavíkur, eftir samnefndri bók Auðar Jónsdóttur.
Ólafur hlaut Grímuna - Íslensku leiklistarverðlaunin, fyrir hlutverk Fagins í Óliver og hlutverk Lljovtsiks í Svartri mjólk. Hann hefur einnig verið tilnefndur fyrir leik sinn í Brimi og Fagnaði. Hann hlaut Grímuna sem leikskáld ársins ásamt Auði Jónsdóttur fyrir leikgerðina Fólkið í kjallaranum.
Verkefni Ólafs Egils í Þjóðleikhúsinu í vetur eru Hreinsun, Heimsljós, Íslandsklukkan, Leitin að jólunum og Bjart með köflum.
Síðast uppfært í ágúst 2011.