Ólafía Hrönn Jónsdóttir

 

Ólafía Hrönn Jónsdóttir útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1987.

Hún hefur farið með fjölda hlutverka hjá Þjóðleikhúsinu, Alþýðuleikhúsinu, LR og í kvikmyndum. Nýlegasta hlutverk hennar hjá LR er í Með vífið í lúkunum.

Fyrsta hlutverk hennar í Þjóðleikhúsinu var Hnappasmiðurinn í Pétri Gaut. Ólafía Hrönn var fastráðin við Þjóðleikhúsið 1991. Síðan þá hefur hún meðal annars leikið Ragnheiði Valdimarsdóttur í Gleðispilinu, Guðríði í Elínu Helgu Guðríði, Þrúði í Ég heiti Ísbjörg Ég er ljón, Hjördísi í Hafinu, Martein skógarmús í Dýrunum í Hálsaskógi, Chris í Dansað á haustvöku, Höllu í Gauragangi, titilhlutverkið í Taktu lagið, Lóa!, Soffíu frænku í Kardemommubænum, Charlotte í Don Juan, Nönnu systur í samnefndu verki, Möggu í Kennarar óskast, Frúmu-Söru í Fiðlaranum á þakinu, ömmu Einfríðar í Grandavegi 7, Scout í Poppkorni, Guðrúnu í Solveigu og Rauðsmýrarmaddömuna og Brynju í Sjálfstæðu fólki.

Hún lék hér einnig saungprófessorynjuna í Strompleiknum, Inès í Lífið þrisvar sinnum, Olgu Hlín Arnfinnsdóttur í farsanum Allir á svið, Ragnheiði Birnu (eldri) og ýmis hlutverk í Þetta er allt að koma og frú Peachum í Túskildingsóperunni. Hún fór með hlutverk Ásu í Pétri Gaut og aðalhlutverkið í Stórfengleg.

Meðal nýlegustu verkefna Ólafíu Hrannar hér eru Ívanov, Skilaboðskjóðan, Utan gátta, Brennuvargarnir, Af ástum manns og hrærivélar, Gerpla, Finnski hesturinn, Lé konungur og Bjart með köflum. Hún var nýlega gestaleikari í sýningu Kristjáns Ingimarssonar í Danmörku, Big wheel cafe.

 

Ólafía Hrönn hlaut Grímuverðlaunin fyrir leik sinn í Pétri Gaut og var tilnefnd fyrir Lé konung, Utan gátta, Ívanov, Sólarferð, Stórfengleg og Þetta er allt að koma. Hún hlaut Edduverðlaunin fyrir leik sinn í kvikmyndinni Brúðgumanum.

 

Nú í vetur leikur Ólafía Hrönn í Heimsljósi og Bjart með köflum hér í Þjóðleikhúsinu.

 

Síðast uppfært í ágúst 2011.





Letur breytingar


Leit