
Nína Dögg er fædd í Reykjavík árið 1974. Hún útskrifaðist úr Leiklistardeild Listaháskóla Íslands árið 2001. Í Hafnarfjarðarleikhúsinu lék hún Söchu í Platonov og Karen í Englabörnum. Í Borgarleikhúsinu lék Nína Dögg m.a. í Kryddlegnum hjörtum og í Maríu í Púntila og Matta. Hún er einn af stofnendum leikhússins Vesturports. Þar hefur hún m.a. leikið í Rómeó og Júlíu, Brimi og Woyzek. Nína Dögg hefur leikið í útvarpsleikhúsinu og í kvikmyndum; Villiljósi eftir Ragnar Bragason og Hafinu eftir Baltasar Kormák og Ólaf Hauk Símonarson og Kvikyndi í leikstjórn Ragnars Bragasonar. Í Þjóðleikhúsinu hefur Nína Dögg leikið Stjörnu í Rambó 7 og Katrínu í Átta konum. Nína Dögg lék í Hamskiptunum.
Nína Dögg Filippusdóttir hlaut Stefaníustjakann fyrir störf sín að leiklist árið 2005.