Margrét Eir hefur starfað sem söngkona og leikkona á Íslandi í yfir tuttugu ár. Á þessum árum hef hún starfað með helstu tónlistarmönnum landsins og sungið inn á fjölmargar plötur sem sólósöngvari og bakrödd.
Margrét Eir útskrifaðist frá Raddskóla Kristin Linklater árið 2007 í New York og stofnaði söngskóla árið 2009 undir nafninu MEiriskóli. Hún lauk námi í leiklist við Emerson College í Boston 1998
Hún hefur komið fram á mörgum tónleikum, meðal annars með Sinfóníuhljómsveit Ísland (á War of the Worlds og Heiðurstónleikum Gunnars Þórðarsonar) og verið þátttakandi í tónleikum Frostrósa frá upphafi.
Árið 2000 gaf hún út sína fyrstu sólóplötu og tvær aðrar fylgdu í kjölfarið. Fjórða plata hennar var dúettaverkefni. Platan MoR Duran fékk mikla athygli í Bandaríkjunum, og var spiluð á yfir 250 útvarpsstöðvum í Bandaríkjunum og Kanada.
Síðasta ár hefur Margrét verið með Söngleikjasýningu bæði í Tjarnarbíó og um landið.
Síðustu fjögur ár hefur hún sungið með hljómsveitinni Thin Jim og er væntanleg plata á þessu ári.
Margrét hefur einnig starfað talsvert í leikhúsi. Meðal sýninga sem hún hefur leikið og sungið í eru Hárið í Gamla bíói, Oliver hjá LA og RENT, Með fullri reisn og Glanni Glæpur í Latabæ hjá Þjóðleikhúsinu.
Margrét Eir leikur í Vesalingunum í Þjóðleikhúsinu í vetur.
(Janúar 2012).