Helga I. Stefánsdóttir

 

Helga I. Stefánsdóttir hefur starfað við leikhús og kvikmyndir jöfnum höndum sem leikmynda- og/eða búningahöfundur frá því að hún útskrifaðist frá leikmyndadeild L’Accademia di Belle Arti í Róm 1989.

 

Hér í Þjóðleikhúsinu gerði hún síðast búninga fyrir Lé konung í leikstjórn Benedicts Andrews og Gerplu, Pétur Gaut, Ívanov, Þetta er allt að koma og RENT í leikstjórn Baltasars Kormáks. Af öðrum verkum má nefna Tvo tvöfalda, Tröllakirkjuna og Kirkjugarðsklúbbinn. Hún var leikmynda- og búningahöfundur í Þrettándakvöldi, Hálsfesti Helenu, Já, hamingjan, Komdu nær, Kaffi og Krabbasvölunum.

 

Meðal verkefna Helgu hjá Leikfélagi Reykjavíkur eru Galdrakarlinn í Oz, Enron, Ófagra veröld, Amadeus, Púntila og Matti, Bláa herbergið, Horft frá brúnni og Ef ég væri gullfiskur sem búningahöfundur og Dauðasyndirnar, Gítarleikararnir, Carmen, HONK, Largo Desolato og Fló á skinni sem leikmynda- og búningahöfundur. 

 

Helga hefur starfað við fjölmargar kvikmyndir. Nú síðast við Djúpið sem búningahöfundur, en einnig við Mömmu Gógó, Brúðgumann, Last Winter, A Little Trip to Heaven, Niceland, Kaldaljós, Fálka, No Such Thing, Engla alheimssins, Sporlaust, Agnesi, Tár úr steini, Svo á jörðu sem á himni, og sjónvarpsmyndirnar Virus au Paradis og Djáknann. Hún var höfundur leikmyndar í kvikmyndinni Regína og sjónvarpsþáttaröðinni Allir litir hafsins eru kaldir. Helga var yfirmaður búningadeildar kvikmyndarinnar Flags of Our Fathers.

 

Helga var tilnefnd til Grímuverðlaunanna fyrir Lé konung, Gerplu, Þrettándakvöld, Ívanov, Ófögru veröld, Pétur Gaut, Úlfhamssögu, Þetta er allt að koma og Púntila bónda og Matta vinnumann. 

 

Hún hlaut Edduverðlaunin fyrir Brúðgumann.

 

Helga gerir búninga fyrir Heimsljós og Afmælisveisluna hér í Þjóðleikhúsinu í vetur.

 

(September 2011).





Letur breytingar


Leit