Egill Ólafsson

Egill Ólafsson starfar sem söngvari, leikari og tónsmiður.

 

Egill hóf störf í leikhúsinu fyrir þremur og hálfum áratug. Oft voru verkefnin tengd leik og söng, eða þá að hann kom að sýningum sem tónhöfundur. Hlutverk hans á leiksviði, í kvikmyndum og sjónvarpsverkum eru rúmlega sjötíu, en auk þess hefur Egill samið tónlist fyrir tuttugu og fimm leiksýningar, þar af tónlist fyrir þrjá söngleiki, Gretti, Evu Lunu og Come Dance With Me. Síðastnefnda verkið var sýnt á Off Broadway 1996.  

 

Helstu leikhlutverk Egils í söngleikjum eru hr. Peachum í Túskildingsóperunni (2005), rakarinn í Þreki og tárum (1995), Jean Valjean í Vesalingunum (1987) og Sky Masterson í Gæjum og Píum (1983) í Þjóðleikhúsinu, Fred Graham/Petruchio í Kysstu mig Kata (2000), Rihad Halabi/einræðisherrann í Evu Lunu (1994) og Glámur í Gretti (1981) hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Escamillio í Carmen Negra (1998) hjá Íslensku Óperunni og Peron í Evitu (1997) í uppfærslu P-leikhússins.

 

Egill hefur starfað með hljómsveitunum Spilverki þjóðanna, Stuðmönnum, Hinum íslenska Þursaflokki, The Icelandic Sound Company, skandínavísku tilraunasveitinni Ægi, Tríói Björns Thoroddsen og Jónasi Þóri píanóleikara. Undanfarin ár hefur Egill ferðast í alla grunnskóla landsins með öðrum tónlistarmönnum og flutt tónlist undir yfirskriftinni Tónlist fyrir alla. Þá hefur Egill starfað í Noregi fyrir Rigskonsertene að svipuðum verkefnum.

 

Hljómdiskar Egils eru farnir að nálgast hundraðið og hugverkin á skrá hjá Stefi tæp 500.

 

Egill fer með hlutverk Javerts lögregluforingja í uppsetningu Þjóðleikhússins á Vesalingunum í vetur.

 

 

(Ágúst 2011).





Letur breytingar


Leit