Björn Hlynur Haraldsson útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands árið 2001. Hann var einn af stofnendum leikhópsins Vesturport og hefur leikið þar meðal annars í Rómeó og Júlíu sem sýnt var í Borgarleikhúsinu, Young Vic Theatre og The Playhouse Theatre í London, í Brimi sem hefur verið sýnt víða, bæði innan lands og utan, og í Woyzeck sem sýnt hefur verið í Barbican leikhúsinu í London, í Borgarleikhúsinu og nú síðast í New York. Björn Hlynur lék í Blóðbrúðkaupi í Almeida Theatre í London. Hann lék einnig í Sölumaður deyr hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Gestinum hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Þíbylju. Björn Hlynur hefur leikið í kvikmyndunum Reykjavík Guesthouse: Rent a bike, Kaldaljós og aðalhlutverk í Strákarnir okkar. Upplýsingar um nýjustu verkefni Björns Hlyns í Þjóðleikhúsinu má sjá hér fyrir neðan.