Sigurvald Ívar Helgason hóf störf í leikhúsi árið 1996, hjá Flugfélaginu Lofti í Loftkastalanum. Þar starfaði hann sem tæknimaður við ýmsar uppákomur og hannaði lýsingu fyrir nokkrar leiksýningar. Eftir nokkur ár við önnur störf, meðal annars hjá Exton og við kennslu hjá Tónlistarskóla Húnaþings vestra, lá leiðin í Borgarleikhúsið þar sem hann var ráðinn hljóðmaður hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Þar sá hann meðal annars um hljóðmynd/hljóðstjórn fyrir Mein Kampf, Söngvaseið og Fólkið í blokkinni, og Jesus Christ Superstar og Ást sem LR og Vesturport sýndu í sameiningu. Í Borgarleikhúsinu tók Sigurvald einnig að sér fjölda verkefna fyrir Íslenska dansflokkinn. Hann hefur einnig starfað með Vesturporti.
Sigurvald hefur starfað við tónleika og uppákomur fyrir ýmsa listamenn eins og Þór Breiðfjörð, Stuðmenn, Sniglabandið, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Lisu Ekdahl, Sven-Bertil Taube, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Björgvin Halldórsson og fleiri.
Sigurvald hefur verið fastráðinn hjá Þjóðleikhúsinu frá vori 2011. Meðal helstu verkefna hér í Þjóðleikhúsinu má nefna hljóðmynd/hljóðstjórn fyrir Bjart með köflum, Listaverkið, Litla skrímslið og stóra skrímslið, Big Wheel Café (frá Neanderleikhúsinu) og nú síðast Vesalingana.
(Febrúar, 2012).