Jósef Halldórsson nam arkítektúr við Technische Universität Berlin og vann um árabil við húsahönnun. Árið 2008 tók hann þátt í sinni fyrstu leiksýningu, hannaði leikmynd og búninga fyrir Gegen die Wand í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar í Stadtstheater Schwerin í Þýskalandi. Við sama leikhús hannaði Jósef leikmynd og búninga fyrir Clockwork Orange árið eftir.
Í Stadtstheater Konstanz hannaði Jósef leikmynd og búninga fyrir uppsetningar á Lé konungi og Mutter Courage eftir Brecht, en sú sýning hlaut verðlaun á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni í Erbil í Írak sem besta sýning og fyrir leikmynd.
Haustið 2011 hannaði hann leikmynd fyrir uppsetningu Þorleifs á Meistaranum og Margarítu í Landestheater Tübingen í Þýskalandi. Sem stendur vinnur Jósef í samstarfi við Önnu Rún Tryggvadóttur að leikmynd og búningum fyrir Othello við leikhúsið í St.Gallen í Sviss.
Jósef gerir leikmynd og búninga fyrir Dagleiðina löngu hér í Þjóðleikhúsinu í vetur, og er sýningin fyrsta sviðs- og búningaverkefni hans á Íslandi.
(Febrúar, 2012).