Melkorka Sigríður Magnúsdóttir

Melkorka Sigríður Magnúsdóttir lærði danssmíði við School of New Dance Development í Amsterdam og samtímadans við P.A.R.T.S. í Brussel 2006-2010.

 

Hún hefur samið ýmis sviðslistaverk, dansað í verkum hér á landi og erlendis og kennt klassískan listdans.

 

Melkorka dansar um þessar mundir í sýningu belgíska danshöfundarins Wim Vandekeybus, Radical Wrong.

 

Hún er meðlimur í Íslensku Hreyfiþróunarsamsteypunni sem starfað hefur frá árinu 2005 og var tilnefnd til Grímunnar sem danshöfundur ársins 2009 og 2010.

 

Melkorka er meðlimur í sviðslistabandinu John the Houseband sem dansar tónleika og syngur danssmíðar.

 

Melkorka sér um sviðshreyfingar í Svartur hundur prestsins hér í Þjóðleikhúsinu í vetur.

 

 

(September 2011).





Letur breytingar


Leit