Baltasar Kormákur

Baltasar Kormákur útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1990. Hann hefur leikið fjölda hlutverka á sviði og í kvikmyndum, leikstýrt í Þjóðleikhúsinu og víðar, leikstýrt kvikmyndum og framleitt kvikmyndir.

 

Leikstjórnarverkefni Baltasars við Þjóðleikhúsið eru Leitt hún skyldi vera skækja, Hamlet, RENT, Draumur á Jónsmessunótt, Þetta er allt að koma, Pétur Gautur, Ívanov og Gerpla.

 

Meðal hlutverka hans hér má nefna Volodja í Kæru Jelenu, Rómeó í Rómeó og Júlíu, brúðgumann í Blóðbrullaupi, Konstantín í Mávinum, Bernandó í West Side Story, Rogozhín í Fávitanum, Brick í Ketti á heitu blikkþaki, Mark í Listaverkinu (1997 og 2011), Andrei Prozorov í Þremur systrum, Þorvald Helmer í Brúðuheimili og Dan í Komdu nær.

 

Hann hefur einnig leikið aðalhlutverk í nokkrum kvikmyndum, meðal annars í Djöflaeyjunni, Englum alheimsins og Reykjavík-Rotterdam.

 

Baltasar hefur skrifað handrit og leikstýrt kvikmyndunum 101 Reykjavík, Hafinu, A little Trip to Heaven, Mýrinni og Brúðgumanum. Hann leikstýrði einnig Inhale og er að leggja lokahönd á kvikmyndina Contraband.

 

Baltasar rekur framleiðslufyrirtækið Sögn ehf/Blueeyes Productions sem framleiðir sviðsverk, kvikmyndir og sjónvarpsefni.

 

Baltasar hlaut Grímuverðlaunin sem leikstjóri ársins fyrir Þetta er allt að koma og Pétur Gaut, en báðar sýningarnar hlutu einnig verðlaunin sem sýning ársins. Hann var einnig tilnefndur sem leikstjóri ársins fyrir Gerplu og Ívanov. Hann hlaut Stefaníustjakann fyrir störf sín að leiklist árið 2007.

Kvikmyndir Baltasars hafa hlotið fjölda Edduverðlauna. Má þar nefna að Hafið, Mýrin og Brúðguminn hlutu verðlaunin sem besta mynd ársins.

Einnig hafa kvikmyndir hans unnið til fjölmargra verðlauna á alþjóðavettvangi. Meðal erlendra kvikmyndaverðlauna má nefna að 101 Reykjavík hlaut Discovery Award í Toronto og Mýrin hlaut Kristalshnöttinn, aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Karlovy Vary.

Baltasar leikur nú í vetur í endurfrumsýningu Þjóðleikhússins á Listaverkinu eftir Yasminu Reza á Stóra sviðinu og leikstýrir Afmælisveislunni eftir Harold Pinter í Kassanum.

 

(September 2011).





Letur breytingar


Leit