Elín Hansdóttir útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2003 og Kunsthochschule Berlin-Weissensee árið 2006. Hún hefur á undanförnum árum getið sér orð víða um heim fyrir stórar innsetningar sem iðulega byggja á rýmisrannsóknum þar sem einstaklingurinn er í forgrunni í hreyfingu sinni í gegnum verkið. Hún hefur sýnt meðal annars á Frieze Projects í London, ZKM í Karlsruhe Þýskalandi, Den Frie Utstillingsbygning í Kaupmannahöfn og Wood Street Galleries Pittsburgh í Bandaríkjunum. Elín býr og starfar í Berlín.
Elín gerði leikmynd og búninga fyrir On Misunderstanding eftir Margréti Bjarnadóttur sem var frumsýnt í Hamburg á liðnu leikári og verður sýnt í Kassanum síðar í vetur.
Elín gerir leikmynd fyrir Svartan hund prestsins eftir Auði Övu Ólafsdóttur sem frumsýnt verður hér í Þjóðleikhúsinu í haust, og er það fyrsta leikmynd hennar fyrir Þjóðleikhúsið.
www.elinhansdottir.net
Síðast breytt í ágúst 2011.