Auður Ava Ólafsdóttir lærði listfræði í París og vinnur sem listfræðingur auk þess sem hún er rithöfundur. Hún er lektor í listfræði við Háskóla Íslands og hefur kennt listasögu víða, svo sem við myndlistar- og leiklistardeild Listaháskóla Íslands og við MR. Hún hefur verið safnstjóri Listasafns HÍ, skrifað um myndlist og unnið við sýningarstjórn á Íslandi og erlendis.
Auður hefur gefið út þrjár skáldsögur, Upphækkaða jörð (1998), Rigningu í nóvember (2004), Afleggjarann (2007) og eina ljóðabók, Sálminn um glimmer (2010).
Fyrir Rigningu í nóvember hlaut hún Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og fyrir Afleggjarann Menningarverðlaun DV og Fjöruverðlaunin. Afleggjarinn var tilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2009 og í kjölfarið var skáldsagan þýdd á dönsku og frönsku. Afleggjarinn hefur hlotið frábæra dóma og viðtökur erlendis, hlotið þrenn bókmenntaverðlaun í Frakklandi (2010) og Kanada (2011) sem besta evrópska skáldsagan og verið tilnefnd til fimm annarra bókmenntaverðlauna í frönskumælandi löndum. Í haust kemur skáldsagan út í Þýskalandi, Bandaríkjunum, Bretlandi, Hollandi, á Spáni og Ítalíu.
Auður Ava er höfundur leikritsins Svartur hundur prestsins sem Þjóðleikhúsið sýnir í vetur. Hún hlaut handritsstyrk frá Leikritunarsjóði Þjóðleikhússins, Prologos til að skrifa verkið.
(September 2011).