Jana María Guðmundsdóttir

 

Jana María Guðmundsdóttir útskrifaðist sem leikkona frá Royal Scottish Academy of Music and Drama í Glasgow árið 2009 og lauk burtfararprófi í klassískum söng frá Söngskólanum í Reykjavík árið 2006.

Jana María var fastráðin leikkona hjá Leikfélagi Akureyrar 2009-2010 og lék þar meðal annars í Lilju, Lyklinum að jólunum og söngleiknum Rocky Horror.

Jana María er einn stofnenda leikfélagsins Silfurtunglsins. Hjá Silfurtunglinu lék hún Sheilu í Hárinu sumarið 2011 og Amöndu í nýju íslensku leikverki eftir Jón Gunnar Þórðarson, Saknað, á liðnu hausti.

Í vetur hefur Jana María komið fram sem söngkona í tónleikaröðinni Söngfuglar í Salnum ásamt Ívari Helgasyni og hljómsveit.

Jana María leikur í vetur í Vesalingunum hér í Þjóðleikhúsinu, og er það fyrsta verkefni hennar hér.

(Janúar 2012).





Letur breytingar


Leit