Valgerður Guðnadóttir

Valgerður Guðrún Guðnadóttir útskrifaðist frá framhaldsdeild Guildhall School of Music and Drama vorið 2000, en áður hafði hún lokið 8. stigi frá Söngskólanum í Reykjavík.

Valgerður hefur leikið og sungið í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Íslensku Óperunni og víðar. Meðal helstu hlutverka hennar eru María í West Side Story, Gréta Garbo í Halldóri í Hollywood, Janet í Rocky Horror, Pamina í Töfraflautunni, Barbarina í Brúðkaupi Fígarós, Governess í Turn of the Screw, Belinda í Dido & Eneas, Poppea í Krýningu Poppeu, Linda í Gauragangi og María í Söngvaseiði. Hún hefur leikið í ýmsum barnaleikritum, meðal annars Ávaxtakörfunni, Hafinu bláa og Benedikt búálfi.

Valgerður hefur haldið fjölda tónleika og komið víða fram sem einsöngvari hérlendis og í Bretlandi.
Hún hefur sungið inn á fjölmarga geisladiska og ljáð Disneypersónum eins Pocahontas, Mulan og Litlu hafmeyjunni rödd sína.

Nú fyrir stuttu kom út diskurinn Draumskógur sem er fyrsta sólóplata Valgerðar.

Haustið 2011 mun Valgerður fara með hlutverk Papagenu í uppfærslu Íslensku Óperunnar á Töfraflautunni eftir W. A. Mozart í Hörpu. Hún mun einnig koma fram á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands þar sem flutt verða þekktustu söngnúmer úr James Bond kvikmyndunum undir stjórn Carl Davis.

Valgerður hlaut Grímuverðlaunin sem söngvari ársins 2009 fyrir Söngvaseið.

Valgerður fer með hlutverk Fantine í Vesalingunum í Þjóðleikhúsinu í vetur.

 

Síðast breytt í ágúst 2011.





Letur breytingar


Leit