Þór Breiðfjörð útskrifaðist frá söngleikjadeild Arts Educational London Schools árið 1997.
Strax að loknu námi var honum boðið hlutverk í nýrri uppfærslu Andrews Lloyd Webber á söngleiknum Jesus Christ Superstar á West End, og síðan þá hefur hann komið fram í fjölda söngleikja í Bretlandi, Þýskalandi og Skandinavíu. Meðal hlutverka sem hann hefur farið með eru Jean Valjean, Javert, Enjolras og biskupinn af Digne í Vesalingunum, titilhlutverkið í Óperudraugnum í uppfærslu Ken Hill og Júdas í Jesus Christ Superstar. Hann lék París í uppsetningu Vesturports á Rómeó og Júlíu á West End. Þór hefur einnig leikið í sjónvarpi og kvikmyndum .
Undanfarin þrjú ár hefur Þór dvalið í Kanada við upptökur og kynningu á plötu sinni Running Naked. Eitt af lögunum á plötunni var tilnefnt til ECMA-tónlistarverðlauna og valið í auglýsingaherferð Microsoft á Windows 7. Þór var einnig valinn til að spila á ECMA-verðlaunahátíðinni og hefur komið fram í sjónvarpi þar ytra.
Nánari upplýsingar um Þór er að finna á vefsetri hans: www.thorthemusic.com
Þór fer með hlutverk Jeans Valjeans í sýningu Þjóðleikhússins á Vesalingunum í vetur. Þetta er fyrsta verkefni Þórs við Þjóðleikhúsið og býður leikhúsið hann velkominn til starfa.
(Ágúst 2011).