Baldur Trausti Hreinsson lauk prófi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1997. Hann hefur leikið í fjölmörgum sýningum í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, hjá sjálfstæðum leikhópum og í kvikmyndum.
Meðal nýlegustu verkefna hans hér í Þjóðleikhúsinu eru Sögustund, Lér konungur, Allir synir mínir, Oliver, Frida… viva la vida, Kardemommubærinn, Sumarljós, Macbeth, Vígaguðinn, Konan áður, Gott kvöld og Sitji guðs englar. Meðal annarra hlutverka hans hér eru Ormur í Meiri gauragangi, Sigurjón í Solveigu, Benny í RENT, Íngólfur Arnarsson Jónsson í Bjarti og bóksali í Ástu Sóllilju í Sjálfstæðu fólki, Trofímov í Kirsuberjagarðinum, yngri bróðirinn í Já, hamingjan, Dominic Tyghe í Vilja Emmu, Vronskí greifi í Önnu Kareninu, Lambi í Strompleiknum, Haraldur í söngleiknum Með fullri reisn, Lars í Veislunni og Katbæingur í Ríkarði þriðja. Hann lék Pétur Niles í Sorgin klæðir Elektru, René, Raymond Asso og Charles Dumont í Edith Piaf, elskhugann í Norðri, Karþag Kilbride í Mýrarljósi, Franz Overbeck og fleiri hlutverk í Dínamíti, ýmis hlutverk í Halldóri í Hollywood, þjóf í Túskildingsóperunni og ýmis hlutverk í Virkjuninni.
Baldur Trausti lék í Grease, Bláa herberginu, Kysstu mig Kata og Djöflunum í Borgarleikhúsinu, auk þess sem hann lék í Evítu og Fífli í hófi sem sýnd voru í Íslensku óperunni.
Hann hefur farið með aðalhlutverk í kvikmyndunum Dansinum og Villiljósi.
Verkefni Baldurs Trausta við Þjóðleikhúsið í vetur eru Svartur hundur prestsins, Litla skrímslið og stóra skrímslið og Vesalingarnir.
Síðast uppfært í ágúst 2011.