Friðrik Erlingsson

Friðrik Erlingsson útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1983.

Hann var lagahöfundur og gítarleikari í hljómsveitunum Purrki Pillnikk 1981 – 1983 og Sykurmolunum 1986 – 1988, á plötunum ‘Einn moli’ á mann’ og ‘Life’s too good,’ og einn af stofnendum Smekkleysu.

Friðrik starfaði sem myndskreytir, texta- og hugmyndasmiður og hönnunarstjóri á ýmsum auglýsingastofum, en fyrsta skáldsaga hans, Benjamín dúfa, hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 1992 og verðlaun Skólamálaráðs Reykjavíkurborgar 1994. Bókin hefur verið gefin út í 10 löndum þ.á.m. Ítalíu, Bandaríkjunum og Bretlandi. Friðrik var tilnefndur til Norrænu barnabókaverðlaunanna árin 1992 og 1995. Friðrik skrifaði handrit að samnefndri kvikmynd sem hefur fengið verðlaun víða um heim.

Friðrik fékk sérstök verðlaun dómnefndar (Special Prix de Jury) í samkeppni sem haldin var af Sambandi Evrópskra sjónvarpstöðva fyrir handrit að sjónvarpsmyndinni Góða ferð, Sveinn Ólafsson, sem var útgefin 1998 sem skáldsaga með sama nafni. Sú bók var gefin út í Bretlandi árið 2006 undir titlinum ‘Fish in the Sky’ af Meadowside Children’s books. Skáldsagan Bróðir Lúsifer, sem kom út hér á landi árið 2000, verður gefin út af sama forlagi 2012, undir titlinum Boy on the Edge.

Friðrik hefur samið fjölda söngtexta, m.a. Í nótt við lag Ingva Þórs Kormákssonar, sem Eivör Pálsdóttir flutti í undankeppni Eurovision 2003, og ort texta við lög eftir Gunnar Þórðarson, m.a. Íslands barn, Vernd, Annar en ég er og Minning þín. Auk þess hefur hann bæði frumsamið og umort texta fyrir helstu dægurlagasöngvara þjóðarinnar eins og Jóhönnu Guðrúnu, Guðrúnu Gunnarsdóttur, Sigríði Beinteinsdóttur, Björgvin Halldórsson, Leone Tinganelli, Borgardætur og Frostrósir.

Friðrik hefur skrifað handrit að leiknum sjónvarpsmyndum og kvikmyndum, veitt handritaráðgjöf og kennt handritaskrif við Kvikmyndaskóla Íslands. Hann skrifaði handrit að fyrstu tölvugerðu teiknimyndinni, Litla lirfan ljóta, sem framleidd var af Caoz, en með því fyrirtæki hefur hann unnið handrit að tölvugerðri teiknimynd í fullri lengd, Þór í Heljargreipum, sem frumsýnd verður haustið 2011. Sú kvikmynd er byggð á samnefndri bók eftir Friðrik sem Veröld gaf út 2008, en önnur bókin um Þór, Leyndarmál guðanna, kom út hjá Veröld haustið 2010.

Friðrik þýðir Vesalingana sem Þjóðleikhúsið sýnir í vetur.

 

 

Síðast breytt í ágúst 2011.





Letur breytingar


Leit