Þorsteinn Bachmann

 

Þorsteinn Bachmann útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1991.

Hann hefur leikið á þriðja tug hlutverka í leikhúsi, meðal annars hjá Leikfélagi Akureyrar, Leikfélagi Reykjavíkur og Alþýðuleikhúsinu. Þorsteinn hefur leikið hátt í tuttugu hlutverk í sjónvarpi og kvikmyndum á síðastliðnum árum. Hann hefur einnig fengist töluvert við leikstjórn og var leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar um skeið. Þorsteinn hefur haldið fjölda námskeiða í leiklist og kennt bæði við Leiklistarskóla Íslands og Kvikmyndaskólann.

Meðal helstu hlutverka Þorsteins eru Steinn Elliði í Vefaranum mikla frá Kasmír hjá LA, Gestur fréttastjóri í Pressu 1&2 á Stöð 2 og Keli í kvikmyndinni Veðramót.

Þorsteinn leikur nú í vetur í Hreinsun og Heimsljósi á Stóra sviðinu. Eru það fyrstu hlutverk hans við Þjóðleikhúsið og býður leikhúsið hann velkominn til starfa.

 

(Texta síðast breytt í ágúst 2011).





Letur breytingar


Leit