Stefán Jónsson

Stefán Jónsson útskrifaðist frá Guildhall School of Music and Drama í London árið 1989.

 

Að námi loknu lék Stefán hjá Leikfélagi Reykjavíkur í Þrúgum reiðinnar, Kjöti, Ævintýri og Einari Áskatli. Hann réðst til Þjóðleikhússins 1991 og lék hér meðal annars Ágúst í Hafinu, Litla-Dverg í Skilaboðaskjóðunni, Ása í Gauragangi, Ruckly í Gaukshreiðrinu, Ippolít í Fávitanum, Snjókall í West Side Story, Tom í Leigjandanum, Gunna gæ í Þreki og tárum, aðalsmanninn Jakob í Sem yður þóknast, Vaskes í Leitt hún skyldi vera skækja, Mendel í Fiðlaranum á þakinu, Fedotik í Þremur systrum, Hóras í Hamlet og Húbert í Bróður mínum Ljónshjarta. Stefán fór með hlutverk sögumanns og Ólafs í Ystadal í Sjálfstæðu fólki og lék Míkadse lækni, Lavrentí Vaknadse og fleiri hlutverk í Krítarhringnum í Kákasus, Magnús í Landkrabbanum, varðmanninn í Antígónu, Húbert í Laufunum í Toscana, Levin í Önnu Kareninu, Karíus í Karíusi og Baktusi, Helmút veislustjóra í Veislunni, ýmis hlutverk í Með fullri reisn og Hnappasmiðinn o.fl. í Pétri Gaut. Hann lék einnig Alexander í Stjörnum á morgunhimni í Iðnó og titilhlutverkið í Erling í Loftkastalanum.

 

Á hvíta tjaldinu hefur Stefán leikið í kvikmyndunum Ryði, Inguló, Strákunum okkar , Kaldri slóð, Sumarlandi, Gauragangi og Roklandi. Af sjónvarpsverkum má nefna Jóhann Sigurjónsson í Leiftrinu bjarta, titilhlutverkið í Baróninum, Viktor, Endurreisnina og almúgann, Litbrigði jarðar, Rétt 1 og 2, Hlemmavideo, Pressu 2 og fjölda áramótaskaupa.

 

Á seinni árum hefur Stefán haslað sér völl sem leikstjóri. Hér í Þjóðleikhúsinu leikstýrði hann Hænuungunum, Túskildingsóperunni, Fagnaði, Baðstofunni, Óhappi, söngleiknum Legi og Herjólfur er hættur að elska.

 

Hann leikstýrði Kvetch, Sporvagninum Girnd, Héra Hérasyni, Draugalest, Sekt er kennd, Belgísku Kongó, Terrorisma og Enron í Borgarleikhúsinu.

Í Nemendaleikhúsi LHÍ leikstýrði hann Forðist okkur og Eftirlitsmanninum.

Stefán fékk Grímuna - Íslensku leiklistarverðlaunin fyrir leikstjórn sína á Kvetch þegar þau voru veitt í fyrsta sinn árið 2003. Hann var tilnefndur til sömu verðlauna fyrir Leg, Sporvagninn Girnd, Héra Hérason og Forðist okkur. Hann var einnig tilnefndur til Grímunnar fyrir leik sinn í Veislunni og Erling.

Stefán gegnir nú stöðu prófessors við leiklistar- og dansdeild Listaháskóla Íslands og situr í listráði Þjóðleikhússins.

Stefán leikstýrir Hreinsun hér í Þjóðleikhúsinu í vetur.

 

(Október, 2011).

 

 





Letur breytingar


Leit