Heiða Ólafsdóttir útskrifaðist sem leikkona frá Circle In The Square Theater School í New York sumarið 2009. Áður en hún hóf nám í leiklist hafði hún verið í tónlistarskóla í mörg ár og einnig lært söng í Söngskólanum í Reykjavík og lokið eins árs masterclass frá Complete Vocal Institute í Danmörku. Hún hefur tekið þátt í söngleikjum, þar á meðal Sögunni af Nínu og Geira á Broadway, Footloose í Borgarleikhúsinu og Buddy Holly í Austurbæ. Heiða hefur einnig gefið út eina sólóplötu árið 2005 og starfað sem útvarpskona á Rás 2 um nokkurt skeið.
Heiða leikur í Bjart með köflum og Vesalingunum í Þjóðleikhúsinu í vetur.
(Texta síðast breytt í ágúst 2011).