Hilmir Jensson

Hilmir Jensson útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2010.

 

Lokaverkefni hans í Nemendaleikhúsinu voru Eftirlitsmaðurinn, Bráðum hata ég þig og Stræti.

 

Hann hefur leikið hér í Þjóðleikhúsinu í Bjart með köflum, Lé konungi og Ballinu á Bessastöðum. Hann var einnig aðstoðarmaður leikstjóra í Finnska hestinum og Hreinsun.

 

Hilmir hefur iðkað samkvæmisdansa frá sjö ára aldri og unnið til ýmissa verðlauna hér heima og erlendis, en þar ber hæst Norðurlandameistaratitil árið 1999. Hann hefur sinnt stundakennslu í argentínskum tangó við leiklistardeild LHÍ.

 

Hann lék í Gálmu og Ég er vindurinn hjá Sóma þjóðar. Hann lék í Spuna eða Kamelljóni fjárhirðisins í Skemmtihúsinu.

 

Hilmir lék í Bjarnfreðarson, Hlemmavideo og Makalaus.

 

Hilmir leikur hér í vetur í Vesalingunum, Leitinni að jólunum, Bjart með köflum og Ballinu á Bessastöðum.

 

 

(Febrúar 2012).





Letur breytingar


Leit