Stefán Hallur Stefánsson

 

Stefán Hallur útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands árið 2006. Hann hefur starfað með Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Vesturporti, Vér Morðingjum, Sokkabandinu, ART í Bandaríkjunum og CDN Orleans í Frakklandi. 

Hjá Þjóðleikhúsinu hefur hann meðal annars leikið í Lé konungi, Heddu Gabler, Íslandsklukkunni, Gerplu, Brennuvörgunum, Sumarljósi, Bakkynjum, Legi, Óhappi, Baðstofunni, Þeim ljóta, Macbeth og Sædýrasafninu. 

Hann lék í Enron hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Mojito í Tjarnarbíói, Ritskoðaranum og Hér & Nú hjá Sokkabandinu, Penetreitor og Bubba Kóngi hjá Vér Morðingjum, Afgöngum hjá Austurbæ og Woyzeck hjá Vesturporti. 

Stefán Hallur hefur leikið í kvikmyndum og sjónvarpi, meðal annars í Pressu, Jóhannesi, Desember, Roklandi og Djúpinu.

Hann er stundakennari við leiklistardeild Listaháskóla Íslands.

Hann leikstýrði Eftir lokin í Tjarnarbíói.

Verkefni Stefáns Halls í Þjóðleikhúsinu í vetur eru Hreinsun og Heimsljós, auk þess sem hann er aðstoðarmaður leikstjóra í Vesalingunum og Afmælisveislunni. Hann leikur jafnframt í Sjöundá, sem er samstarfsverkefni leikhópsins Aldrei óstelandi og Þjóðleikhússins.

 

(Febrúar 2012).





Letur breytingar


Leit