Þórunn Arna Kristjánsdóttir útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2010 og var þá ráðin til Þjóðleikhússins. Á fyrsta ári sínu hér í leikhúsinu lék hún í Finnska hestinum, Leitinni að jólunum, prinsessuna í Ballinu á Bessastöðum og í Bjart með köflum.
Lokaverkefni hennar í Nemendaleikhúsinu voru Eftirlitsmaðurinn, Bráðum hata ég þig og Stræti.
Fyrir útskrift tók hún þátt í ýmsum leiklistartengdum verkefnum. Í Íslensku óperunni fór með hlutverk litlu stúlkunnar með eldspýturnar í samnefndum söngleik og söng hlutverk Floru í óperunni Tökin hert eftir Benjamin Britten. Hún hefur einnig tekið þátt í ýmsum verkefnum sem sýnd hafa verið á leiklistarhátíðinni Art Fart og hún lék í sjónvarpsþáttunum Hæ Gosi sem sýndir eru á Skjá einum. Þórunn Arna hóf ung nám við Tónlistarskóla Ísafjarðar og vorið 2006 lauk hún B.Mus gráðu í söng frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands.
Nú í vetur leikur Þórunn í Sögustund um Hlina kóngsson, Heimsljósi, Vesalingunum og Afmælisveislunni, auk þess sem hún leikur í Ballinu á Bessastöðum og Bjart með köflum sem tekin voru upp frá síðasta leikári.
(September 2011).