Lárus Björnsson hóf störf hjá Þjóðleikhúsinu haustið 2006 eftir tuttugu ára starf hjá Leikfélagi Reykjavíkur í Iðnó og Borgarleikhúsi. Lárus hefur lýst á annað hundrað leiksýningar, meðal annars fyrir Leikfélag Reykjavíkur, Íslensku óperuna, Nemendaleikhúsið, Íslenska dansflokkinn, Loftkastalann, Leikfélag Íslands og Þjóðleikhús Færeyinga.
Meðal ljósahönnunarverkefna hans hér í Þjóðleikhúsinu eru Allir synir mínir, Finnski hesturinn, Íslandsklukkan, Gerpla, Oliver!, Kardemommubærinn, Ástin er diskó, lífið er pönk, Engisprettur, Bakkynjur, Sólarferð, Hálsfesti Helenu og Hjónabandsglæpir.
Lárus hefur verið tilnefndur til Grímuverðlaunanna fyrir lýsingu í Öllum sonum mínum, Við sáum skrímsli, Íslandsklukkunni, Gerplu, Í Óðamansgarði, Engisprettum, Woyzeck, Bakkynjum, Draumleik, Híbýlum vindanna, Chicago, Stingray og Kryddlegnum hjörtum.
Lárus hannar lýsingu hér í Þjóðleikhúsinu í vetur fyrir Vesalingana ásamt Ólafi Ágúst Stefánssyni og Listaverkið.
Síðast uppfært: ágúst 2011