Halldór Laxness og leikhúsið
Fjölmargar leiksýningar, sjónvarpsmyndir og kvikmyndir hafa verið byggðar á verkum Halldórs Laxness. Verk hans hafa verið sýnd hjá Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur, Leikfélagi Akureyrar, atvinnuleikhópum og áhugaleikfélögum.
Frumsamin leikrit Halldórs Laxness eru Straumrof, Silfurtúnglið, Strompleikurinn, Prjónastofan Sólin og Dúfnaveislan.
Skáldsögurnar Vefarinn mikli frá Kasmír, Salka Valka, Sjálfstætt fólk, Heimsljós, Íslandsklukkan, Atómstöðin, Kristnihald undir jökli, Innansveitarkronika og Gerpla hafa allar verið sviðsettar í leikgerðum, og eru til fleiri en ein leikgerð af mörgum þeirra.
Kvikmyndir og sjónvarpsmyndir hafa verið byggðar á skáldsögunum Sölku Völku, Atómstöðinni, Brekkukotsannál, Paradísarheimt og Kristnihaldi undir Jökli, leikritinu Silfurtúnglinu og smásögunum Ungfrúin góða og húsið, Lilju, Jóni í Brauðhúsum og Veiðitúr í óbygðum.
Einnig hafa verk Halldórs Laxness orðið efniviður í balletta og óperu, auk þess sem fjölmargar leiknar dagskrár hafa verið samdar upp úr verkum hans. Ríkisútvarpið hefur flutt leikið efni af ýmsu tagi, byggt á verkum Halldórs Laxness.
Halldór Laxness sat í þjóðleikhúsráði allt frá því það tók til starfa árið 1948 til ársins 1969 eða í rúma tvo áratugi.
Halldór Laxness í Þjóðleikhúsinu
Leiða má getum að því að góðar viðtökur Íslandsklukkunnar við opnun Þjóðleikhússins árið 1950 hafi orðið Halldóri Laxness hvatning til að skrifa fyrir leikhúsið, sem og frjótt samstarf hans við leikhúslistafólkið. Fram að frumflutningi Íslandsklukkunnar hafði hann einungis sent frá sér eitt leikrit, Straumrof árið 1934, en fjórum árum eftir opnun Þjóðleikhússins, árið 1954, sýndi leikhúsið nýtt leikrit eftir hann, Silfurtúnglið. Leikstjóri var Lárus Pálsson, sem einnig hafði leikstýrt Íslandsklukkunni. Árið 1961 frumsýndi Þjóðleikhúsið Strompleikinn í leikstjórn Gunnars Eyjólfssonar og árið 1966 Prjónastofuna Sólina í leikstjórn Baldvins Halldórssonar. Þjóðleikhúsið hefur sýnt fjölda annarra verka eftir Halldór Laxness, eins og fram kemur í eftirfarandi yfirliti. Þjóðleikhúsið hefur einnig staðið fyrir ýmiskonar dagskrám skáldinu til heiðurs.
1950 Íslandsklukkan. (Verkið var gefið út á bók undir heitinu Snæfríður Íslandssól). Leikstjórn: Lárus Pálsson.
1954 Silfurtúnglið. Leikstjórn: Lárus Pálsson.
1961 Strompleikurinn. Leikstjórn: Gunnar Eyjólfsson.
1966 Prjónastofan Sólin. Leikstjórn: Baldvin Halldórsson.
1968 Íslandsklukkan. Leikstjórn: Baldvin Halldórsson.
1972 Sjálfstætt fólk. Leikgerð og leikstjórn: Baldvin Halldórsson.
1975 Silfurtúnglið. Leikstjórn: Bríet Héðinsdóttir og Sveinn Einarsson.
1981 Hús skáldsins, byggt á Heimsljósi. Leikgerð: Sveinn Einarsson. Leikstjórn: Eyvindur Erlendsson.
1985 Íslandsklukkan. Leikgerð og leikstjórn: Sveinn Einarsson.
1990 Úr myndabók Jónasar Hallgrímssonar, leikgerð. Leikstjórn: Guðrún Þ. Stephensen.
1992 Prjónastofan Sólin. Sviðsettur leiklestur. Leikstjórn: Þórhildur Þorleifsdóttir.
1992 Straumrof. Sviðsettur leiklestur. Leikstjórn: Þórhallur Sigurðsson.
1992 Strompleikurinn. Sviðsettur leiklestur. Leikstjórn: Guðjón Pedersen.
1992 Veiðitúr í óbygðum. Sviðsettur leiklestur. Leikstjórn: Guðjón Pedersen.
1999 Bjartur – Landnámsmaður Íslands og Ásta Sóllilja – Lífsblómið, tvær leiksýningar byggðar á Sjálfstæðu fólki. Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir. Leikstjórn: Kjartan Ragnarsson.
2002 Strompleikurinn. Leikstjórn: Kristín Jóhannesdóttir.
2010 Gerpla. Leikgerð og leikstjórn: Baltasar Kormákur.
2010 Íslandsklukkan. Leikgerð og leikstjórn: Benedikt Erlingsson.
Nánari upplýsingar um sýningar á verkum Halldórs Laxness er að finna á vef Leikminjasafnsins, leikminjasafn.is
Ýmsar aðrar upplýsingar um skáldið er að finna á gljufrasteinn.is
Síðast uppfært 20. apríl 2010