Erlingur Gíslason lauk prófi frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins 1956.
Hann hefur um áraraðir verið í framvarðasveit leikara Þjóðleikhússins, en hann starfaði hér svo til óslitið frá útskrift og þar til hann lét af föstu starfi fyrir aldurs sakir.
Hlutverk hans hér eru orðin hátt á annað hundrað. Meðal þeirra eru Strindberg í Nótt ástmeyjanna, Óvinurinn í Gullna hliðinu, jarlinn á Glostri í Lé konungi, Bill Sikes í Oliver Twist, Adam í Garðveislu, Stóri Júlíus í Gæjum og píum, Bernik í Máttarstólpum þjóðfélagsins, titilhlutverkið í Skugga-Sveini, Bergman í Endurbyggingu, ráðherrann í Ráðherrrann klipptur, Jack í Dansað á haustvöku, Dorn læknir í Mávinum, bóndinn í Þrettándu krossferðinni, Adam í Sem yður þóknast, Floríó í Leitt hún skyldi vera skækja, Pápi í Ketti á heitu blikkþaki og Lykla-Pétur í Gullna hliðinu.
Meðal nýlegra hlutverka Erlings hér eru Teiresías spámaður í Antígónu, Jóhannes í Laufunum í Toscana, afinn í Veislunni, gamli maðurinn í Norðri og ýmis hlutverk í Öxinni og jörðinni.
Erlingur lék hér í Íslandsklukkunni sem frumsýnd var á 60 ára afmæli Þjóðleikhússins vorið 2010, var sýnd allt síðasta leikár og verður tekin upp að nýju eftir áramót.
Hann leikur í Afmælisveislunni hér í Þjóðleikhúsinu í vetur.
(September 2011).