Ríkey Kristjánsdóttir útskrifaðist með BA-próf í textílhönnun og útsaumi frá Håndarbejdets Fremmes Seminarium í Danmörku 2003. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum á Íslandi og í Danmörku. Hún gerði búninga fyrir Gyðjuna í vélinni á Listahátíð, Kommúnuna í Borgarleikhúsinu og Hnykil í Norðurpólnum, og leikmynd og búninga fyrir Bara í draumi og Soffíu mús í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Hún sá um leikmynd og hönnun lokasýninga fyrir Lunga, listahátíð ungs fólks. Ríkey hefur haldið námskeið og staðið fyrir hönnunarsmiðjum. Hún var tilnefnd til Grímunnar fyrir Gyðjuna í vélinni.
Síðast uppfært 23.02.2010