Benedikt Erlingsson útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1994. Hann hefur leikið fjölda hlutverka á sviði, í sjónvarpi og kvikmyndum og leikstýrt í Borgarleikhúsinu, Þjóðleikhúsinu og víðar.
Benedikt lék meðal annars Galdra-Loft í Óskinni eftir Jóhann Sigurjónsson og Vladimir í Beðið eftir Godot eftir Samuel Beckett í Borgarleikhúsinu. Hann setti upp og lék sýninguna Ormstungu, ásamt leikkonunni Halldóru Geirharðsdóttur og sænska leikstjóranum Peter Engkvist, í Skemmtihúsinu. Hann samdi einnig og lék einleikinn Mr. Skallagrímsson undir leikstjórn Peters Engkvists í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Meðal kvikmynda sem Benedikt hefur leikið í eru mynd leikstjórans Lars von Triers, Direktoren for de hele, og Mávahlátur og Tár úr steini. Hann lék einnig í sjónvarpsþáttunum Fóstbræðrum.
Benedikt var leiðtogi leikhópsins á Nýja sviði Borgarleikhússins leikárin 2001-2002 og 2002-2003 og leikstýrði þá verkunum Fyrst er að fæðast eftir Line Knutson, And Björk of course... eftir Þorvald Þorsteinsson og Sumarævintýri - byggt á Vetrarævintýri Shakespeares. Benedikt leikstýrði einnig Skáldanótt eftir Hallgrím Helgason, Draumleik eftir August Strindberg, Ófögru veröld eftir Anthony Neilson og Jesú litla eftir leikhópinn í Borgarleikhúsinu. Leikstjórnarverkefni Benedikts í Þjóðleikhúsinu eru Sólarferð eftir Guðmund Steinsson og Íslandsklukkan eftir Halldór Laxness, í leikgerð Benedikts.
Benedikt var búsettur í Kaupmannahöfn um tveggja ára skeið og starfaði þar og víðar á Norðurlöndum.
Benedikt hlaut Grímuverðlaunin fyrir leikstjórn sína á Draumleik, Ófögru veröld og Jesú litla, en þessar þrjár sýningar hlutu einnig verðlaunin sem sýning ársins. Benedikt hlaut Grímuna sem besti leikari ársins í aðalhlutverki fyrir einleik sinn Mr. Skallagrímsson. Hann hlaut ennfremur Grímuna fyrir handrit einleiksins Mr. Skallagrímsson og handrit sýningarinnar Jesú litli, sem hann samdi ásamt leikhópnum. Benedikt var einnig tilnefndur til Grímunnar fyrir leikstjórn sína á Íslandsklukkunni.
Síðast uppfært í október 2010.