Jafnréttisáætlun

Jafnréttisáætlun Þjóðleikhússins.

Markmið jafnréttisáætlunar Þjóðleikhússins er að stuðla að jafnrétti kynjanna og jafnri stöðu og virðingu þeirra kvenna og karla sem starfa innan þess. Unnið verði gegn viðhorfum sem leiða til aðstöðumunar kvenna og karla og þess gætt að jafnréttismál og leiðir til að vinna að jafnri stöðu kynjanna verði virkur þáttur í starfsmannastefnu Þjóðleikhússins.

Þjóðleikhúsið leggur áherslu á eftirfarandi:

Mannauður Þjóðleikhúsið telur mikilvægt að nýta til jafns þá auðlegð sem felst í menntun, reynslu, hæfileikum og viðhorfum kvenna og karla.

Launajafnrétti

Við ákvörðun launa skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað. Konum og körlum skulu greidd jöfn laun og skulu njóta sömu kjara fyrir jafn verðmæt og sambærileg störf og hvers konar frekari þóknun, beina og óbeina, hvort heldur er með hlunnindagreiðslum eða öðrum hætti. Einnig skulu þau njóta sömu kjara hvað varðar lífeyris-, orlofs- og veikindarétt og hvers konar önnur starfskjör eða réttindi sem metin verða til fjár sbr. 14. gr. laga nr. 96/2000.

Auglýsingar og upplýsingagjöf

Í auglýsingum eru störf ókyngreind og þess gætt að hafa bæði kynin í huga við gerð auglýsinga.

Stöðuveitingar og störf

Jafnréttissjónarmið verði metin til jafns við önnur mikilvæg sjónarmið sem ráða við stöðuveitingar. Stefnt er að því að halda sem jöfnustu hlutfalli kynjanna í hinum ýmsu störfum innan Þjóðleikhússins.

Verkefnaval og ábyrgð

Þess verði gætt við val verkefna og val listrænna stjórnenda að konur og karla njóti jafnra tækifæra til að axla ábyrgð og njóta hæfileika sinna.

Starfsþjálfun og endurmenntun

Tryggt verði að konur og karlar njóti sömu möguleika til endurmenntunar og starfsþjálfunar og til að sækja námskeið er haldin eru til að auka hæfni í starfi eða undirbúnings öðrum störfum.

Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs

Leitast er við að gera starfsmönnum kleift að samræma starfsskyldur sínar og skyldur gagnvart fjölskyldu með sveigjanlegum vinnutíma, hlutastörfum eða annarri vinnuhagræðingu, eftir því sem við verður komið.

Starfsandi og líðan starfsmanna

Lögð er áhersla á góða líðan starfsmanna og góðan starfsanda í Þjóðleikhúsinu. Allir starfsmenn eiga rétt á því að komið sé fram við þá af virðingu og þeir sæti ekki kynferðislegri áreitni, einelti né öðru ofbeldi.

Kynferðisleg áreitni er kynferðisleg hegðun sem er ósanngjörn og/eða móðgandi og í óþökk þess sem fyrir henni verður, hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess eða þeirra sem fyrir henni verða og er haldið áfram þrátt fyrir að gefið sé skýrt í skyn að hegðunin sé óvelkomin. Kynferðisleg áreitni getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn.

Jafnréttisfulltrúi

Jafnréttisfulltrúi fjallar um og hefur eftirlit með jafnréttisstarfi í Þjóðleikhúsinu. Jafnréttisfulltrúi sendir Jafnréttisstofu árlega greinargerð um jafnréttisstarf ráðuneytisins sbr. 11. gr. laga nr. 96/2000.

Jafnréttisfulltrúi er Ari Matthíasson.

Starfsmaður getur leitað til jafnréttisfulltrúa með mál er varða hvers kyns áreitni eða misrétti.




Letur breytingar


Leit