Prologos

Síðasta úthlutun úr Prologos var í lok nóvember 2010. Ekki verður úthlutað aftur úr sjóðnum að sinni.

 

Leikritunarsjóðurinn Prologos hefur starfað við Þjóðleikhúsið frá því í júní árið 2008. Hann vinnur að því að efla íslenska leikritun og nýsköpun í sviðslistum með styrkveitingum til listamanna og öðrum verkefnum.

 

Sjóðurinn var stofnaður af Bjarna Ármannssyni og Helgu Sverrisdóttur, í samvinnu við Þjóðleikhúsið. Stofnframlag sjóðsins var 16 milljónir króna, og starfstími sjóðsins var ráðgerður frá árinu 2008 til ársins 2010.

  

Prologos hefur á starfstíma sínum veitt alls sextán handritsstyrki og styrkt fjórtán leiksmiðjuverkefni. Nú þegar hafa alls níu þessara verkefna verið sýnd eða sett á verkefnaskrá leikhúsa og dansflokka, og hafa sum þeirra verið sýnd á leiklistar- og danshátíðum. Prologos hefur einnig styrkt leikritaútgáfu og kynningu á íslenskum leikritum á erlendri grundu.

 

Umsóknum í sjóðinn hefur stöðugt fjölgað, eða úr 24 í upphafi til 65 umsókna haustið 2010, en alls hafa 280 umsóknir um handrits- og leiksmiðjustyrki borist Prologos frá upphafi. Sá fjöldi spennandi umsókna sem berst Prologos er órækur vitnisburður um þann mikla frumkraft sem býr í íslensku sviðslistafólki um þessar mundir, og þörf fyrir fjármagn til að hrinda verkefnum í framkvæmd í sviðslistageiranum er mikil.

 

Prologos starfar við Þjóðleikhúsið og leikhúsið veitir styrkhöfum Prologos stuðning með ýmsum hætti, býður þeim listræna ráðgjöf, aðstöðu og samvinnu við listafólk hússins. Að endingu getur Þjóðleikhúsið hugsanlega orðið sýningarstaður verkefna. Nokkur verkefni hafa þegar komist á dagskrá leikhússins og fleiri eru í undirbúningi.

 

Umsóknarferli >>
Styrkhafar >>

 

Úthlutun úr sjóðnum

Fagráð sjóðsins fjallar um innsendar umsóknir og mælir með verkefnum við sjóðstjórn, en ráðið getur einnig að eigin frumkvæði mælt með verkefnum. Stjórn er ekki skuldbundin til að taka ákvörðun í samræmi við meðmæli fagráðs.

Í fagráði sitja þrír aðilar hverju sinni, en í fagráði hafa setið Kjartan Ragnarsson, Melkorka Tekla Ólafsdóttir, Pétur Gunnarsson, Stefán Jónsson, Sveinn Einarsson og Þorvaldur Þorsteinsson. Stjórn skipa Bjarni Ármannsson, Tinna Gunnlaugsdóttir og Kristbjörg Kjeld.

 

Framlög til höfunda frá Prologos eru með þrennum hætti

1. Framlag ætlað til úrvinnslu á innsendri hugmynd eða verklýsingu sem hlotið hefur meðmæli fagráðs

Framlagið er alls kr. 600 þúsund og greiðist helmingur upphæðarinnar (kr. 300 þúsund) eftir að ákvörðun um framlag liggur fyrir, en lokagreiðsla (kr. 300 þúsund) er innt af hendi við skil á handritsdrögum til sjóðsins.

2. Leiksmiðjuverkefni og tilraunaverkefni

Sjóðurinn úthlutar einstaklingum eða hópum fé til að koma á fót leiksmiðju eða setja á laggirnar tilraunaverkefni, gjarnan þar sem teflt er saman fólki úr ólíkum listgreinum.

3. Annað

Annað það sem stjórn sjóðsins ákveður og samrýmist markmiðum sjóðsins. 


 

 

Nánari upplýsingar: prologos@leikhusid.is

 

 

 





Letur breytingar


Leit