Kúlan - barnaleikhús

Hvað er Kúlan ?

Kúlan er barnaleikhús Þjóðleikhússins 

 

Hvar er Kúlan ?

Kúlan er í sama húsi og Kassinn við Lindargötu 7 á bak við Þjóðleikhúsið. Gengið er inn um sama inngang og í Kassann, en niður stigann.

 

Hvernig er Kúlan ?

Í Kúlunni eru sýndar stuttar leiksýningar í litlu rými, þar sem yngstu leikhúsgestirnir eru leiddir inn í töfraheim leikhússins við aðstæður sem henta aldri þeirra og þroska.

 

Hvenær eru sýningar í Kúlunni ?

Sýningar eru venjulega á laugardögum og sunnudögum þegar krakkar eiga frí í skólanum og pabbar og mömmur og afar og ömmur hafa tíma til þess að fara með börnunum í leikhúsið. Skólar geta líka samið um að fá sýningar á skólatíma.

 

Listrænn stjórnandi Kúlunnar er Þórhallur Sigurðsson (thorhallur@leikhusid.is)




Letur breytingar


Leit