03. Okt. 2019

Shakespeare verður ástfanginn – frumsýning í kvöld!

Eitt umfangsmesta verkefni Þjóðleikhússins á leikárinu

Í kvöld frumsýnum við á Stóra sviðinu Shakespeare verður ástfanginn í leikstjórn Selmu Björnsdóttur. Með aðalhlutverk fara þau Aron Már Ólafsson (Aron Mola) og Lára Jóhanna Jónsdóttir, en allls taka um 20 leikarar þátt í sýningunni, auk hljómsveitar. Leikritið er byggt á kvikmyndinni Shakaspeare in Love sem hlaut Óskarsverðlaun sem besta kvikmyndin árið 1999.

Verkinu hefur verið lýst sem eldfjörugum, rómantískum gamanleik þar sem spunnið er frjálslega út frá ævi leikskáldsins Williams Shakespeares. Leikritið, sem er byggt á Óskarsverðlaunamyndinni Shakespeare in Love, var frumsýnt á West End í London árið 2014, fékk afar góðar viðtökur og hefur verið sýnt víða við miklar vinsældir.

Unga skáldið Will Shakespeare óttast að hann hafi glatað skáldgáfunni. Aðalsmeyna Víólu de Lesseps dreymir um að verða leikari, á tímum þar sem samfélagið leyfir einungis karlmönnum að stíga á svið. Shakespeare heillast af þessari skarpgreindu, ákveðnu og listhneigðu ungu konu, og ástin fyllir hann andagift á ný. En elskendurnir lifa á viðsjálum tímum þar sem stéttaskipting er mikil, valdabaráttan harðvítug og stutt er í að sverðin fari á loft.

Leikritið er í senn óður til töframáttar skáldskaparins og leiklistarinnar, og hefur verið kallað “ástarbréf til leikhússins”. Fjölmargir leikarar og tónlistarmenn sameina krafta sína við að skapa sannkallaða stórsýningu þar sem horfið er aftur til Elísabetartímans í umgjörð og búningum.

Bráðfyndið og fjörugt verk um eldheitar ástir, baráttuna fyrir því að fylgja köllun sinni í hörðum heimi listarinnar og snilligáfuna sjálfa!

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími